Afnám verðtryggingar

Aðalvandamálið hér á landi er auðvitað að við sitjum uppi við ónýtan gjaldmiðil. Þess vegna þarf fyrst og fremst að afnema krónuna. Þá mun allt hitt sennilega lagast í kjölfari. Menn ættu nú að snúa sér að rót vandans frekar en að reyna eitthvað að krukka í yfirborðið. Sigmundur Davíð og hans flokkur eru andsnúnir því að við tækjum upp stöðugan gjaldmiðil og eru að tapa sér í einhverjum þjóðrembingi. Í kvöld hefði ég gjarnan vilja sjá forsætisráðherran í Kastljósi að ræða þessi mál. Kannski hefur honum ekki geðjast að mæta í kappræður og svara fyrir varasömum fullyrðingum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

HVERS VIRÐI VERÐA SKULDIR/ EIGNIR- EF EVRAN VERÐUR TEKIN UPP !!!

Erla Magna Alexandersdóttir, 27.1.2014 kl. 21:03

2 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Þetta mætti athuga án þess að evrópu- grýlan sé beitt.

Úrsúla Jünemann, 27.1.2014 kl. 22:02

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er ekki gjaldmiðlinum að kenna hvernig ástandið í efnahagsmálum er heldur er það efnahagsstjórnunin sem hefur verið í molum hér frá lýðveldisstofnun.  Og ástandið breytist ekkert á einni nóttu við það að taka upp annan gjaldmiðil.

Jóhann Elíasson, 27.1.2014 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband