Af hverju bara fótbolti?

Það eru fjölmargar íþróttagreinar til og eitthvað af þeim er stundað jafnvel á Íslandi. En þegar litið er í blöðin þá virðist einungis ein grein vera til: Fótbolti. Það er talað um "Enskan Bolta", Íslenskan bolta" eins og engar aðrar boltaíþróttir væru í gangi. Íslendingar eru 3. eða 4. flokks fótboltaþjóð, ekki man ég hvar við stöndum í geturöð í heiminum. Allavega ekki mjög framarlega.

Samt eru blöðin fulla af fótboltafréttum. Helst líkjast þær viðskiptafréttum. Við hvaða félag fær Eiður Smári að spila næst? Hvaða kaup fær hann? Fyrir hvað var hann seldur? Fær hann að  vera með landsliðinu? Situr hann á bekknum eða fær hann að koma inn á? Mikið er ég orðin þreyt á þessum Eiður Smára fréttum.

Fréttablaðið er verst. Þar telst það til undantekningar að um eitthvað annað en fótbolta er fjallað. Jú, kannski um Tiger Woods og gólfið og hneykslunarmálin og skilnað. En aðrir fjölmiðlar gera ekki mikið betur.

Er ekki tími kominn að íþróttafréttir fjalla um íþróttir - og þá á fjölbreytilegan hatt? Æsifréttir og hneykslismál ásamt kaup og sölu á hátekjufólki á heima annarstaðar í blöðunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, á man(n)salssíðunum.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 7.9.2010 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband