7.9.2010 | 09:12
Bankarugl
Ég man eftir einum kunningja sem bar nælu og á því stóð "Bankanum þínum er sama um þig". Og mikið er ég sammála þessu, vildi gjarnan setja "Arion" fyrir framan. Þarna í þessu fyrirtæki eru furðuleg vinnubrögð í gangi. Menn sem eru með risagjaldþrot mega fá "eitthvað pínulítið", bara nokkra tugi milljónir svo þeir þurfa ekki alveg að lifa í fátækt eins og við hin. En þeir sem létu plata sig af einmitt sömu bönkunum að taka "hagstætt" lán eru svoleiðis í djúpum... að þeir sjá sér varla framtíð.
Ætti maður ekki bara að loka reikninginn hjá Arion og leggja peningar undir koddan?
Athugasemdir
Ég gæti ekki sett peningana undir koddann því að þá þyrfti ég að sofa uppréttur og það er svo óþægilegt.
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 8.9.2010 kl. 08:55
Úpps, ég hugsaði ekki svona langt.
Úrsúla Jünemann, 8.9.2010 kl. 22:35
Að sjálfsögðu! Þetta er orði frekar regla en undantekning að nota koddan sem öruggan banka.
Eyjólfur Jónsson, 9.9.2010 kl. 19:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.