Að hlaupa af sér hornin

Að hlaupa af sér hornin Þegar ungt fólk safnar saman sinni lífsreynslu og ætlar ekki að láta segjast af eldri og reyndari mönnum þá er gjarnan talað um að „þeir þurfa að hlaupa af sér hornin“ og er þetta hugtak greinilega komið af skepnum sem eru fastar í sínum farvegi og geta ekki lært af öðrum. Í þýskri tungu tala menn um það að borga kennslugjöldin: „Lehrgeld bezahlen“, og er átt við þegar menn ana út í vitleysu og hlusta ekki á neinn í kringum sig sem hefur kannski áður fyrr lent í svipuðum vandamálum.Íslendingum liggur alltaf mikið á, töfralausnir eiga að bjarga öllu. Þolinmæði er ekki okkar sterkasta hlið. Við stökkvum á allt sem heitir skjótur gróði, og því miður stökkva oft  allir í einu á eitthvað æðislegt og kannski – en bara kannski - arðvænlegt. Sama hvort það hét loðdýrarækt, fiskeldi eða stóriðja. Á Austurlandi voru menn sem vildu flýta sér hægar og voru ekki á einu máli um ágæti Kárahnjúkaframkvæmda álitaðir föðurlandssvikarar. Þeir  þorðu ekki að opna munninn. Nú er Fjarðarbyggð með skuldsettustu bæjarfélögum landsins. Ekki hefur orðið sú fólksfjölgun sem menn bjuggust við og íbúðarhúsnæði sem var klambrað upp í flýti stendur óselt. Lítil fyrirtæki hafa þurft að leggja upp laupana. Atvinnuskapandi hvað?Orkumálin hér á landi eru grátlegt dæmi um að menn kunna sér ekki hóf. Það er ekki bara það að við getum ekki lært af öðrum þjóðum. Uppblásið bankakerfi og gríðarleg skuldasöfnun, afsprengi af einhverju versta gullgrafaræði sem hefur ætt yfir þetta sker hefur leikið okkur grátt. Siðlausir og illa menntaðir ráðamenn réðu ríkjum. Þjóðin hefur þurft svo sannarlega að borga kennslugjöldin í þeim málum eftir hrunið.          En þótt við gátum ekki lært af mistökum annarra þá  getum við ekki einu sinni lært af eigin mistökum. Töfralausna- gúrúar eru ennþá vinsælir. Enn eru köllin hávær eftir fleiri orkuverum sem munu hrinda okkur í enn meira skuldafen og rústa landið, enn sjá sumir ekkert atvinnuskapandi en fleiri álver sem munu fá orku á gjafaverði á meðan almenningur þarf að búa við gríðarlega hækkun á orkuverði. Enn fá menn eins og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ blússandi vinsældir út af einhverjum verstu loftkastölum sem hafa nokkurn tíma verið búnir til.Hvenær mun íslenska þjóðin staldra við, hugsa sinn gang og setja sér einhver langtímamarkmið sem nær yfir komandi kynslóðir. Flest okkur eiga jú börn.Við erum væntanlega hugsandi manneskjur sem geta lært úr mistökum. Ekki erum við rollur sem hlaupa af sér hornin en haga sér samt alveg eins og alltaf hefur verið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Sæl. Ég er sammála þér í flestu. Sendi þér til gamans eftirfarandi:

Orðasambandið að hlaupa af sér hornin í merkingunni ‘stillast, læra af reynslunni’ er erlent að uppruna. Í dönsku er sambandið løbe/rende hornene af sig og í þýsku sich dir Hörner ablaufen/absto?en/abrennen. Líkingin er upprunalega sótt í dýraríkið. Ungir hirtir og hreindýrstarfar þóttu róast mikið þegar þeir höfðu misst hornin við að rekast illa á tré. Síðar var tekinn upp sá siður í Þýskalandi að lærlingur, sem taka átti inn í samfélag útlærðra í einhverri iðngrein, varð að láta sem hann væri hafur og festa á sig horn. Hann þurfti síðan að reka hornin í hurð eða súlu þar til þau losnuðu en með því sýndi hann að nú væri hann ekkert ungviði lengur heldur fullgildur.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 17.9.2010 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband