Fjöldi manna upp á Esju

Betri helmingurinn og ég létum slag standa og löbbuðum upp á Esju í góðu veðrinu í gær. Bílastæðin voru yfirfull og fleiri hundruð manns á leiðinni. Gaman að sjá fólk á öllum aldri, í misgóðu formi, misvel útbúið, en allir að skemmta sér í útiverunni. Einnig var skemmtilegt að fylgjast með hundunum í öllum stærðum og gerðum. Og merkilegt var að það sást ekki hundaskít og varla neitt rusl eftir öllum þessum fjölda manna og dýra. Leitt að kaffihúsið við Esjuræturnar var ekki tilbúið. Þarna hefði verið hægt að gera hörku viðskipti þann dag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband