Þjóðarmorð

Það sem er að gerast á Gaza-svæðinu er algjör hryllingur. Þarna eru Ísraelsmenn að fremja þjóðarmorð. Öll ríkin heimsins sem hafa einhverja réttlætiskennd eiga að slíta stjórnarsamstarf við Ísrael. Ég vona að Íslendingar eru ekki á meðal þeirra sem umbera slíkt ódáðaverk sem er í gangi að hálfu Ísrael. Þvílík villimennska á ekki að liða.
mbl.is Hundruð á Lækjartorgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ach mein lieber G.. im Himmel! Liebe Frau!, útrýmingartilraun þjóðverja á gyðingum var þjóðarmorð. Árásir á samtök, sem hefur útrýmingu gyðinga á dagsskránni er ekki þjóðarmorð. Líttu í DUDEN.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.12.2008 kl. 16:56

2 Smámynd: Kommentarinn

Þetta er ekki árás á samtök frekar en að  árásirnar á tvíburaturnana hafi verið árás á Bush..

Kommentarinn, 30.12.2008 kl. 17:04

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jú, kommentari, þetta er einmitt árás á samtök.

Dr. Vilhjálmur á hér efnislega mjög gott innlegg, enda sérfróður. Bendi þér á að fara í læri til hans, fr. Juenemann.  Með áramótakveðju.

Jón Valur Jensson, 30.12.2008 kl. 17:17

4 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Nú er mér öllu lokið! Þjóðverjar hafa gjaldað þess að vera ekki nógu vakandi þegar Hitler tók völdin. Vorum við hér á landi nógu vakandi þegar örfáir menn tóku sér völdin og lögðu þjóðarbúið í rúst?

Hvaða Íslendingur hefði haft kjark til að standa upp og mótmæla þegar Hitler- sveitir voru alls ráðandi? Þetta hefði verið sama og sjálfsmorð.

Litum okkur nær!

Úrsúla Jünemann, 31.12.2008 kl. 16:24

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þjóðverjar guldu þess ekki að sofa á verðinum. Stór meirihluti þjóðarinnar kaus Hitler karlinn yfir sig og stór fjöldi manna í öðrum löndum heillaðist af krampakenndum hreyfingum hans og öskri. Það er leiðinlegt til þess að vita, en satt er það.

Það voru reyndar ýmsir Íslendingar sem höfðu kjark til að mótmæla Hitler, og einnig Þjóðverjar. En enginn Íslendingur gerði það með eins miklum krafti og Íslendingar mótmæla Ísraelum og hatast út í gyðinga nú á dögum. Þeir voru líka fleiri Íslendingarnir, sem létu Hitler heilla sig, en þeir sem lýstu frati á hann.

Dómgreindin er ekki alltaf sterka hlið mannsins. Það á líka við um þá sem styðja baráttu hryðjuverkahópa í Miðausturlöndum og íslamisma í dag. Ef menn sjá ekki hve margt er líkt með Hitlerisma og íslamisma, þá er eitthvað að.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 31.12.2008 kl. 17:06

6 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Veist þú um hvað þú ert að tala, Vilhjálmur? Spurðu foreldra mína hvort þeir guldu þess ekki að hafa trúað áróðursmaskínu Hitlers. Þau voru unglingar þegar stríðið braust út. Þau guldu þess dýru verði. Þau fengu aldrei tækifæri að afla sér menntun. Þau misstu heimilið, heilsuna, sáu ættingja og vini deyja í loftárásum. Þau urðu aldrei þau sama, martraðir fygdu þeim alla ævi.

Samskonar er að dynja yfir saklaust fólk í Palestína. Að mótmæla slíkum fjöldamorðum hefur ekkert með gýðingarhatri að gera.

Úrsúla Jünemann, 2.1.2009 kl. 14:41

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Já, ég veit vel hvað ég er að tala um. Margir aðrir en Þjóðverjar misstu ýmislegt, ef þeir misstu þá ekki lífið. Ég gæti frætt þig um ýmislegt í þeim efnum. Þjóðverjar bera sem þjóð mikla ábyrgð, sem þeir flestir hafa axlað mætavel eftir síðara stríð.

Saklaust fólk, sem lætur lífið á Gaza,er á ábyrgð þeirrar ógnarstjórnar Hamas sem tekið hefur völdin á Gaza og sem seinkar friðarferlinu vegna þess að aðalmarkmið þeirra hér í heiminum er að stúta Ísraelsríki og þeir ætlar sér að reka Gyðinga á haf út. Ósköp keimlíkt ætlunarverki Hitlers.

Flestir Palestínumenn hafa reyndir verið myrtir af öðrum Aröbum. Langflestir af Jórdönum 1970-71. Ísraelsmenn geta vart talist "kvalarar" Palestínumanna í samanburði við Jórdaníukonung.´

Vandamál Palestínumanna er að vissu leiti þýsku þjóðinni og ýmsum öðrum þjóðum í Evrópu að kenna. Hatrið, hið trúarlega og síðar hið rasíska á gyðingum og þjóðarmorðið á gyðingum í Evrópu eru því miður þrír af fjórum hornsteinum Ísraelsríkis. Ríkið var stofnað, þar sem ekki var neitt þjóðríki fyrir og því bjuggust menn ekki við stórum vandræðum.

En afkomendur þeirra sem ofsóttu gyðinga fyrir síðara heimsstríð fóru svo að skilgreina nýtt ríki, Palestínu, og nýja þjóð Palestínumenn. Í þessu tilbúna "ríki" héldu áfram því hatri sem t.d. Hitler-Þýskaland var gegnsýrt af. Þeir nota sama hatursáróðurinn niður í minnstu smáatriði.

Ég vildi óska þess að vandamálið gæti leysts á annan hátt en þann sem við sjáum nú. En því miður er það ekki hægt. Gazverjar kusu yfir sig Hamas og Íslamismann líkt og Þjóðverjar kusu yfir sig Hitler og nasismann. Þeir munu tapa, því ætlunarverk þeirra er og verður þjóðarmorð. Þjóð gyðinga verður ekki sundrað enn einu sinni fyrir duttlunga öfganna.

Þetta ætti að vera afar einfalt að skilja, líka fyrir þá sem áttu foreldra sem voru unglingar í ríki Hitlers.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 2.1.2009 kl. 19:33

8 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Veist þú, Vilhjálmur, hvernig hryðjuverkamenn eru búnir til? Þeir alast upp í ómögurlegum aðstæðum: neyð, atvinnuleysi, menntunarleyis. Þeir upplifa ofbeldi og morð frá yngstu æsku, þeir eiga sér enga von um mannsæmandi líf. Fólkið á Gaza- svæðinu hefur þurft að búa lengi við kúgun og ofbeldi að hálfu Ísrealar sem hafa kallað það sjálfsvörn að skjóta á börn sem köstuðu steinum.

Það er ekki skrítið að fólkið er fullt af hatri og kýs öfgarmenn í stjórn. Fyrir hvern hryðjuverkamann sem ísraelar drepa ásamt kannski 100 saklausum borgurum munu spretta upp 10 hryðjaverkamenn í staðinn þangað til að það er búið að tortíma þetta vesalings fólk sem á ekki einu sinni þann möguleika að flýja land.

Úrsúla Jünemann, 5.1.2009 kl. 11:10

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nei, Úrsúla, Bin Laden bjó ekki við fátækt, Arafat bjó ekki við fátækt, Carlos bjó ekki við fátækt, þeir sem flugu inn í World Trade Center bjuggu ekki við fátækt.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.1.2009 kl. 11:46

10 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Vilhjálmur:

Mér finnst þú vera kominn ansi langt frá malefnalegri umræðu.

Þjóðverjar voru hreint alveg miður sín í lok stríðsins. Þeir guldu þess fullu verði að hafa kolvitlausa hernaðarhyggjumenn sem tóku sér einræði. Enginn mátti hafa aðra skoðun en þeir.

Þetta er svipað sem er að gerast nú með þessi herskáu yfirvöld í Ísrael. Þessir herramenn vilja ekki heyra annað en aðþeir séu aðgerae-ð sem er guði þeirra þóknanlegt. Er þetta ekki gróflegt brot á einu af elsta boðorði trúar Gyðinga: Þú skalt ekki mann deyða! Í þann tíð voru sverð, spjót, hnífar, valslöngur, bogar og örvar notuð en nú er beitt nýjustu manndrápsvopnum sem skila margföldum afköstum sem áður fyrr hefðu tekið margar vikur að ná jafngóðum árangri og nú.

Mér finnst að Þjóðverjar ættu með öllu að taka fyrir að greiða Ísraelum (Gyðingum) stríðsskaðabætur sem þeir hafa innt af hendi í um 60 ár. Verulegur hluti þessa mikla fjár er að öllum líkindum notaður til þess að efla herbúnað sem er notaður gegn 3ja aðila (Palestínumönnum) sem Þjóðverjar eru ekki í neinum erjum við.

Hernaðarhyggja er einhver sú heimskasta stefna sem stjórnmálamenn geta lagt nafn sitt við. Hernaður kallar alltaf á harðari viðbrögð hvernig sem það kann að birtast, hvar, hvernig og hvenær. Hatur og tortryggni leiðir alltaf af sér stigmögnun.

Af hverju fjárfesta Gyðingar ekki í friði fremur en stríði?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 6.1.2009 kl. 17:02

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Guðjón, afsakaðu en ég tel þig vera verulega siðblindan. Fordómar þínir í garð gyðingar eru ógurlegir. Það eru ca. 6.000.000 mannslífa á milli skoðana okkar. Þú ert "Holocaust-relativisti" og aljóðleg samtök skilgreina það sem gyðingahatur.

Þú ert að tala um gyðinga aftur á öldum og eins og það sé eitthvað trúarlegt stríð í gangi. Davíð og Gólíat-style. Ísraelsmenn eru að koma í veg fyrir að morðaldan, sem Evrópumenn (EKKI BARAÞjóðverjar) skelltu yfir þá, endurtaki sig. Milljónir manna með Kóraninn sem vegvísi, ætla sér að útrýma gyðingum. Þeir hafa hrópað það á hverjum degi í áratugi. 

Þjóðverjum er alveg sama hvað þér finnst. Þeir lesa ekki rausið í þér. Meirihluti þjóðverja veit hvað gerðist í landi þeirra og sjá að það sem Hitler buðu heiminum á síðustu öld er verið að endurtaka af Islamófasistum, sem nota sömu slagorðin og nasistar. En þeir hafa líka öfgatrúna og leyfi til að drepa frá Allah hinum almáttuga. Eða þú ert æstur eftir því að aðstoða Islamófasistana, farðu og hjálpaðu þeim og sjáðu hvað mikið vinir þínir fjárfesta í friði!

Það er sagfræðileg staðreynd, að Gyðingar hafa verið fremstir í röð friðarsinna í heiminum. Þess vegna vildi Hitler slátra þeim og þess vegna vill brjálæðingurinn Amajhinedad í Teheran og Hamas á Gaza slátra þeim. Fjöldi leiðtoga í Miðausturlöndum og arabalöndunum hafa áhyggjur á hættunni sem fylgir Dauða-Íslam. Þess vegna halda þeir að sér höndum. Sérðu ekki hvað er að gerast?

Þú ert ekki meiri friðarsinni en ég, Guðjón. Þú ert hins vegar strengjabrúða öfgasamtaka. Mig grunar að þú sért ekki maður til að fjárfesta í neinu nema íslenskum loftkastölum. En hatur þitt er þér til skammar og þú græðir ekkert á því.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 6.1.2009 kl. 20:47

12 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Vilhjálmur: svo virðist að þú eigir við alvarlega en einkennilega þráhyggju að stríða. Ekki er unnt að rökræða við mann sem snýr öllum rökum við og staðreyndum upp á haus. Mun eg því ekki elta ólar við þig út af þessu en mæli eindregið með að þú kynnir þér ákvæði 25. kafla íslensku hegningarlaganna nr.19/1940 áður en þú nýrð samborgurum þeim aur sem þú virðist hafa nóg af. Þessi ákvæði eru um vernd ærunnar og að vera stimplaður sem siðlaus rasisti og jafnvel þaðan af verra er mjög ámælisvert af þinni hálfu.

Vinsamlegast

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 7.1.2009 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband