20.1.2009 | 17:48
Piparúði er neyðarvörn
Ég veit ekki betur en að piparúði er skaðlegt heilsu og er bara leyfilegt í neyðarvörn. Á mótmælafundinum í dag var engin ofbeldi, maður er reyndar hissa hve friðsæl mótmælin eru ennþá. Það er búið að valta yfir þjóðin á skítugum skóm og enginn vill taka ábyrgð á því hvernig komið er. En að lögreglan er að beita piparúða bara til þess að koma fólkinu í burtu er algjört hneyksli. Björn Bjarnason Army ætti að fá betra þjálfun til að bregðast rétt við.
Svo spyr ég einnig: Hvar stendur að börn og unglingar mega ekki taka þátt í mótmælum? Þetta er fólkið sem erfir landið og allar skuldir sem fjárglæframennirnir hafa stofnað og virðist ekki vera ábyrgðir fyrir. Og það í skjóli ónýttra ríkisstjórnar.
Þjóðin var í Alþingisgarðinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvernig væri að að snúa vörn í sókn og vopnast og úða einhverju svipuðu á Lögreglu og ráðamenn
Guðjón Ólafsson, 20.1.2009 kl. 17:53
Ég heyrði nú aðra frásögn hérna á blogginu um hversu friðsæl þessi mótmæli voru.
MacGyver, 20.1.2009 kl. 18:09
Það er furðulegur misskilningur hjá hópi mótmælenda að það hafi einhvern frest til að færa sig sig þegar lögreglan biður um það...
Það virðist ekki færa sig fyrr en úðabrúsinn er kominn upp... en gefur sér samt góðan tíma og reynir að fara eins mikið í taugarnar á lögreglunni og það getur
Og er svo steinhissa þegar það fær úðann á sig og vælir "en við vorum að færa okkur"
Ef að þau væru að færa sig skv tilmælum lögreglu... þá væri ekki verið að úða á það... það er svo einfalt
Kristmann (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 18:15
Það stendur skýrt í lögum landsins að fólki beri UNDANTEKNINGARLAUST að fara að tilmælum lögreglu, svo lengi sem í þeim tilmælum felst ekki lögbrot
Kristmann (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 18:16
Æi Kristmann... never mind.
Burt með þetta lið sem var að láta eins og fífl við Austurvöll. Þá á ég við Geir og co.
Villi Asgeirsson, 20.1.2009 kl. 20:51
Alls óþekk eru afleiðingar þessa varhugaverða piparúða. Á bloggsíðu minni http://mosi.blog.is/blog/mosi/entry/778119 eru tvær spurningar til BB dómsmálaráðherra er lýtur að þessum piparúða.
Hvað verður næst? Verður fosfór dreift næst eða jafnvel naplam?
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 21.1.2009 kl. 13:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.