23.1.2009 | 10:36
Er Ingibjörg ómissandi?
Það liggur alveg í augum uppi að stórhluti í Samfylkingunni vill kosningar í vor enda er það mjög skynsamlegt, bæði fyrir flokkinn og samfélagið. Hver dagur sem beðið er lengur er tapaður dagur. Hvernig virkar þetta í stjórnmálaflokkum ef formaðurinn er alvarlegur veikur og óstarfhæfur? Tekur þá ekki sjálfkrafa varaformaðurinn við? Og er álitið allra í flokknum einskís virði? Ef svo er, til hvers erum við þá með marga þingmenn? Er þá ekki jafn gott að vera bara með einn sem ræður? Mér finnst að lýðræðið í flokkunum er ekki alveg að virka.
Athugasemdir
Sammála.
Rut Sumarliðadóttir, 23.1.2009 kl. 11:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.