Hvað fékk Höskuldur fyrir þetta?

Smámsaman er mér öllu lokið! Enn og aftur er að koma í veg fyrir að seðlabankafrumvarpið verður afgreitt. Og þarmeð er ennþá allt stopp og ekkert gerist í fjármálakreppunni hér á landi. Við vitum að Sjálfstæðisflokkurinn ver Davíð í rauðan dauðan sem einn maður. En hvað gengur Höskuldi til? Þetta eru ekta framsókna - takta: Að halda sig opinn í báða enda og og vera svo tilbúinn að skríða undir sæng með þeim sem bjóða best. Hvaða sannfæringur er það sem maðurinn er að tala um? Varla er Höskuldur að tala um hag þjóðarinnar. Hver dagur í bið þýður tap!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigurðsson

Hvað fekk Höskuldur fyrir þetta, hverslags bull er þetta maðurinn fer eftir sinni sanfæringu. En að gefa það i skyn að hann hafi það mutur segir allt um þig.

Guðjón Sigurðsson, 24.2.2009 kl. 09:55

2 identicon

Halló! Horfðu þið ekki á Kastljós í gær!!! Og fannst ykkur Höskuldur sannfærandi???? Ja hérna hér! Það var hlegið að honum! Þvílíkur bjáni! Eruð þið ekki að skilja að fólk vill fá Davíð burt! Út úr Bankanum! Þegar það er búið að henda manninum út þá er fyrst hægt að horfa frammávið!

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 10:07

3 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Halló, Guðjón, þetta með mútur eru þín orð. Ég átti eiginlega frekar við klapp á bakið frá sjálfstæðisflokknum og prik á þeim bæ í sambandi við stjórnarmyndun eftir kosningu. Farðu varlega með orðin þín!

Úrsúla Jünemann, 24.2.2009 kl. 14:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband