Gleymum ekki litlu vinunum

 Fuglasöngur gleður okkur á vorin. Fuglar eru mikilvægur hlekkur í lífskeðjunni. Án þeirra myndum við drukkna í skordýrum. Með þeirra hjálp þurfum við ekki að úða eitur í garðana okkar.

Síðustu dagana var þeim  erfitt að afla fæðu, snjór yfir öllu á SV landi. Ég er búin að fóðra fuglana allan veturinn. En núna er virkilega nauðsýnlegt að gefa þeim.

Þrestir, starar og svartþrestir vilja fá feitmeti. Gott er að skera niður afgangsfitu í smábitar. Ég er búin að bræða ódýrt smjörlíki í pott og blanda með haframjöli. Þessi blanda er vinsælt hjá flest öllum fuglum sem heimsækja garðinn minn, líka hjá snjótittlingunum, sem vilja auk þess gjarnan fá fræ (samt ekki stórt fræ. Maískorn og hveitikorn þurfa að vera kurluð). Epli og perur eru einnig á matseðlinum hjá mörgum fuglum. Og brauð má uak þess alltaf gefa.


Loksins snjór!

Mikið er gaman að fá loksins snjó og almennilegt vetrarveður á SV landi. Snjórinn hreinsar loftið af svifrykinu og gerir dagana bjartara. Börnin eru til að fara út að leika sér í staðinn fyrir að hanga í tölvu eða fyrir framan sjónvarpið. Vonandi sjá foreldrar sér leik á borði að njóta útiverunnar með börnunum þegar tími gefst. Allir hafa gott af því að fara út að leika sér, aldurinn skiptir ekki máli. Fólk á ekki bara að hugsa um hvort maður kemst átakalaust á einkabílnum. Það eru fleiri fletir á lífi og tilverunni.

Njótum fallega vetrarveðursins.


Sigmundur Davíð og bullið

Hvaða bull er þetta í honum Sigmund Davíð? Að tala um óútfylltan tékka þegar loksins er í sjónmáli að Icesave- málið kemst í höfn. Þetta Icesave- mál hefur verið okkur eins og fjötur um fót og hamlað því að efnahagslífið hér á landi getur farið í betra horf. Gleðilegt að meirihluti sjálfstæðismanna er loksins byrjaður að vinna í þágu þjóðarinnar. Við verðum að ljúka þetta mál, hvort okkur líkar betur eða verr, sem fyrr sem betur.

Gaman er að rifja upp þegar Sigmundur Davíð fór til Noregs á samt Höskuldi og þótti kría út stórlán handa íslensku þjóðarinnar. Við þurfum ekki slíkar skýjaborgir, við þurfum að átta okkur á raunveruleikanum.


mbl.is Icesave-frumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðifrétt

Einkabílumferðin hefur minnkað um 8 % samanborið með tölurnar frá janúar í fyrra. Þetta er gleðifrétt og sýnir að fólkið er aðeins að hugsa sinn gang hvað óþarfar skutlferðir snertir. Það er nefnilega hægt að skipuleggja sig og tengja erindin saman í sömu ferð. Og svo eru auðvitað aðrar leiðir að ferðast: Ganga stuttar vegalengdir, hjóla eða taka strætó. Þó að stjórn strætisvagna er ennþá að  minnka þjónustuna og hækka gjöldin í staðinn má skoða þann kost. Einnig er farið að draga úr notkun nagladekkja og er það mjög jákvæð þróun.
mbl.is Mikið dró úr bílaumferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Koma upp úr skotgröfunum!

Gera þessir 3 einstaklingar sem kærðu kosningar til stjórnlagaþings sér grein fyrir hvað það mun kosta þjóðfélagið? Hvað það kostar okkur að geta ekki drífið í því að semja réttlát lög og afmá í staðinn eitthvað úrelt og ófullnægjandi sem á ekki lengur við? Þetta er bara skemmdaverk af mönnum sem eru innmúraðir í sjálfstæðisflokknum, vilja engar breytingar og eru hræddir um sína stöðu í þjóðfélaginu. Þessir menn voru með skrýtna stefnu þegar þeir buðu sig fram á sínum tíma, vildu helst ekki breyta neinu.

Svona menn eiga ekki að ráða ferðinni . Ríkisstjórnin á að mínu mati að skipa þessa 25 kjörna fulltrúa stjórnlagaþingsins í vinnuna. Þeir voru kosnir á lýðræðislegum forsendum, ekki er hægt að benda á kosningarsvik eða eitthvað í þeim dúr. Formgallar eru ekki stórmál, af þeim má læra. En að láta sér detta í hug að kjósa aftur með öllum kostnaði og fyrirhöfnum eða jafnvel blása stjórnlagaþingið af er auðvitað alveg út úr kú. Fyrir utan þetta er Hæstirétturinn ekki gallalaus enda skipað að mestu af einkavinum sjálfstæðisflokksins.


Vesalings lyðræði hér á landi

Það er alveg greinilegt að bak við tjöldin stjórna ennþá öflin sem eru tengd við sjálfstökuflokkana. Í þeirra valdatíð var snyrtilega gengið frá því að í hæstarétti sætu menn sem eru þeim liðhollir. Þannig má skilja nýjasta niðurstaðan um kosningu til stjórnlagaþings. Rökin að ógilda þessar kosningar eru hlægilegar vægast sagt. En sjálfstökuflokkarnir vilja auðvitað ekki neina lagabreytingar. Og gjammið í þeim um að þetta sé vantraust á ríkisstjórnina segir glögglega hvaðan vindurinn blæs.
mbl.is Stjórnlagaþingskosning ógild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært hráefni til vinnslu

Í viku fór ég í búð sem heitir Hvítlist til þess að versla pappír fyrir skólann. Í þeirri verslun eru seldar leðurvörur í mikilli úrval. Þvílík dásamlegt efni sem er hægt að nota í alls konar framleiðslu. Fiskiroð, selskinn, lambafelld misunnið og margt fleira. Þetta eru afurðir sem ég gæti trúað að það sé góður markaður fyrir þegar það er unnið úr þeim. Við hér á landi eigum svo margt af hugmyndaríku og listrænu fólki. Af hverju í ósköpunum nýtum við þetta ekki meira?

Hættum að fókusa bara á stóriðju, virkjum litlu og meðalstóru fyrirtækin sem skapa miklu fleiri störf þegar samanlagt er.


Ómögurleg réttarhöld yfir níu einstaklinga

Það er svartur blettur á réttarkerfinu okkar að það skyldi ekki fyrir löngu verið búið að fella niður ákæru yfir svokölluðum níumenningunum. Þörf eru á allt öðrum réttarhöldum á mun alvarlegum brotum en þeim að mótmæla. Ég hefði alveg eins getað lent í því að vera handtekin, ég tók líka þátt í mótmælunum. Furðulegt (þó að ekki meira skal segja um þetta) finnst mér að upptökur úr myndarvélum skyldu hafa "týnst" nema smá brot. Í hvaða réttarríki erum við eiginlega stödd?

 


Ýmist sem skapar gleði

Þrátt fyrir allt svartsýnistal í þjóðfélaginu er ýmist að gerast sem vekur gleði og bjartsýni. 

þjóðin er að vakna til meðvitundar í sambandi við sölu auðlinda, tugarþúsundir manns hafa skrifað undir listann sem krefst að auðlindirnar verða í eign þjóðarinnar. Þótt seint sé þá er það ekki of seint.

Forstjóri Landsvirkjunar er með miklu ábyrgara stefnu með skynsamlegra nýtingu orkunnar til framtíðar.

Skuldsett heimili hafa fengið ýmis úrræði af vandanum. Þó að háværir raddir vilja ennþá meir og helst sleppa alveg við að borga.

Höfuðpaurar í gamla Landsbankanum verða teknir fyrir. Von stendur til að loksins fara hjólin að snúast og menn verða að láta taka ábyrgð á gerðum sínum.

 Og svo er dagurinn farinn að lengjast talsvert og gerir það áfram með hverjum degi.

Og handboltastrákarnir eru í góðum gír og búnir að vinna 2 leiki mjög sannfærandi.

Og, og, og...


Skrifa undir listann audlindir.is!

Það mál að auðlindir eiga að vera í eigu þjóðarinnar er eitt af mikilvægustu málunum í dag. Alveg frábært framtak sem Björk okkar er með núna um helgina. Mér finnst að jafn  margir að minnsta kosti ættu að skrifa undir þann lista eins og undir listann sem mótmælir vegatollunum (ég er reyndar búin skrifa undir hann líka). Vonandi er þjóðin ekki ennþá jafn sofandi gagnvart mikilvægustu málunum eins hún var í "góðærinu".

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband