2.8.2010 | 22:00
Ross Beaty örvæntingarfullur?
Vesalings Ross Beaty! Fyrst reynir hann að kaupa Björk með að bjóða henni að vera hluthafi í Magma Energy. Þegar það gekk ekki þá hótar hann að hætta við að kaupa hlut í HS Orku. Þessi maður er braskari af verstu gerð og svífst einskis. Það er ólykt af hans viðskiptum og fagnaðarefni er að ekkert verði af viðskiptum við hann.
Vonandi verða í kjölfari skoðað nánar hvað bæjarstjórn Reykjanesbæjar var að sýslast síðustu árin og af hverju staða bæjarfélagsins er svo skelfilega slæmt. Hvað kom fólkinu á þeim bæ annars til að kjósa sama spillta gengið í kringum Árna Sigfússon aftur?
![]() |
Beaty: Vilja ekki hætta við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2010 | 13:12
Ég skammast mín
![]() |
Ísland sat hjá á þingi SÞ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.7.2010 | 11:21
Þetta þarf að rannsaka betur
![]() |
Kaupin á HS Orku gamaldags |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2010 | 21:01
Hundakúkur á Esjunni
Þegar veðrið er gott leggur fjöldi manna leið sína upp á Esju og er þá venjulega farin hefðbundin leið upp á Þverfellshorn eða eitthvað áleiðis í þá átt. Hundar eru skemmtilegir göngufélagar enda oft með miklu meiri hreyfiþörf heldur en menn. Það er því hið besta mál að taka þá með í fjallgöngu. Nú þurfa hundarnir af og til að gera stykkin sín og hafa hundaeigendur þess vegna yfirleitt plastpoka með sér til að hirða upp eftir ferfætlingana. Allt hið besta mál. Hundarnir kúka oft á leiðinni upp fjallið og er svona frekar leiðinlegt að bera kúkinn upp og niður. Fólkið skilur þess vegna kúkapokana eftir á vegakantinum til að taka þá með á leiðinni niður. Allt gott um þetta, nema hvað? Ósköp er sumt fólk gleymið! Í dag, mánudaginn 19. 7. fór ég upp á Esju, frekar snemma. Það var enginn búinn að skrifa sig í gestabókina uppi á Þverfellshorninu þann dag. Á undan mér var einungis einn hundur og fólkið sem átti hann fór að stóra steininum. En kúkapokarnir sem ég sá á leiðinni voru margfalt fleiri og sumir greinilega búnir að liggja þarna lengi. Þrem dögum áður var ég búin að labba svipaðar slóðir og það má segja að ég sá marga góða kunningja við vegakantinn.
Nú spyr ég: Til hvers er fólkið að setja hundakúkinn snyrtilega í plastpoka þegar það tekur hann svo ekki með sér niður af fjallinu? Þá væri margfalt betra að moka hann undir stein (þó ekki of nálegt einhverjum læk), leyfa honum að breytast í lífrænan áburð sem kæmi kannski einhverjum gróðri að gagni. Hundakúkur í plasti er miklu lengur að eyðast og mun skreyta leiðina upp á Esju í mörg ár.
Nema hundaeigendunum finnst þetta fallegt og þeir vilja setja sínum hvutta minnismerki. Þeir ættu þá að setja vel sýnilegan miða með kúkapokanum. Á honum gæti til dæmið staðið: Á þessum fallega stað kúkaði Snati þann 18. júlí 2010. Eða Verðlaunatíkin mín hún Lubba hafði hér sérlega góðar hægðir.
En ég var með poka á mér og týndi upp gleymdu hundapokana á leiðinni niður. Það sem pirrar manninn á maður að reyna að breyta og bæta. Þegar ég var komin með 15 stykki hætti ég að telja.
Í lokin verð ég að segja að fyrir utan kúkapokana var sáralítið rusl á leiðinni. Heimurinn batnandi fer.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2010 | 22:48
Þvílíkur dagur
Ekki var með nokkrum móti hægt að lúra lengi í dag, sólin bara skipaði manninum að fara snemma á fætur. Þvílíkur dagur! Ég byrjaði á því að hleypa kisunum inn og gefa þeim að borða. Svo vildu þeir - eftir smá knús - fara aftur út í góða veðrið eins og flestir kjósa ef þeir mega ráða því. Ég var að hugsa hvernig það yrði ef ég þyrfti að loka greyin inn dag og nótt eins og öfgamennirnir í sumum bæjarfélögum eru að krefjast núna. Kvöl og pína og jaðrar við pyntingar, fer algjörlega á móti eðli katta. Eftir að hafa sinnt ferfætlingunum mínum hjólaði ég til Reykjavíkur. Miðbærinn iðaði af glöðu fólki sem lá í almenningsgörðum eða sat úti við veitingarstaði og naut lífsins. Ekki þarf maður alltaf að fara langt til að gera sér góðan dag. Mikið er gott að það er búið að loka örfáar götur í miðbænum fyrir bílaumferðina. Nýi borgarstjórn lofar góðu. Ég hjólaði Norðurströndina alveg út á Seltjarnarnes og var hissa hve fáir höfðu lagt leiðina sína þangað. Í slíku lúxusveðri er þetta algjör perla. Áfram lá leiðin meðfram Suðurströndina og í Nauthólsvíkina. Vá! Ströndin var svo pökkuð af sólglöðu fólki að ég hef aldrei séð annað eins. Samt fékk ég mér sundsprett í sjónum en var ekki mjög lengi. Í rólegheitum hjólaði ég aftur heim til mín í Mósó og tók mörg stopp á leiðinni. Seinna kvöldsins labbaði ég niður í fjöru. Kl. 21.30 var ennþá mjög hlýtt og logn, ekki þörf á að vera í peysu. Þvílíkur dagur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2010 | 22:07
Nauthólsvík, staður til að slaka á?
Nauthólsvíkin er að mínu mati það besta sem Reykjavíkurborg hefur nokkurn tíma búið til. Að koma þangað á góðum sumardegi er alveg upplifun, strandalíf eins og gerist ekki betra í útlöndunum. Þetta er sældarstaður fyrir fjölskyldur , börnin elskar að vera þarna og það kostar ekki einu sinni inn krónu! Geri aðrir betra. Frábært starfsemi fer þarna fram á sumrinu í sambandi við siglingakennslu og kafarafélagið hefur aðstöður á þessu svæði. Svo er það sjósundið. Fátt er betra fyrir heilsuna en að synda í köldum sjó. Frá því að ég byrjaði að stunda sjósund hef ég aldrei verið með kvef. Og gigtverkir sem plaga mig minnka til muna þegar ég er búin að fá mér sundsprett í sjónum.
Því miður er alltaf að þrengja að þessum unaðsreitnum. Háskóli Reykjavíkur (sem er tvímælalaust glæsileg bygging) stendur þarna eins og skrímsli og fellur alls ekki inn í umhverfið með öll sín bílastæði og aukandi umferð. Það var mikið slýs að pota þetta þarna niður.
Nýlega hefur farið í vöxt að einhverjir svalir gæjar geisa inn í Nauthólsvíkina á sjósleða. En þarna er baðströnd, meira að segja bláfánaströnd (sem þýðir ómenguð strönd) og margir stunda sjósund þarna. Hvað dettur mönnum í hug að vilja bruna um á svona stað á tryllitækjum? Þurfa þeir endilega að sína sig og flottar græjurnar sínar? Eru þeir ekki að hugsa lengra en fram fyrri sitt eigið nef? Baðvörðurinn vildi meina að ekki þýddi neitt að hringja í lögregluna, þaðan kæmi enginn. Þurfum við sem koma í Nauthólsvíkina til að slaka á láta okkur bjóða svona lagað af fáeinum mönnum sem hafa ekki lært að virða rétt annarra?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.7.2010 | 20:10
Lausagangur glæpamanna?
Mér þykir furðulegt hvað fólk getur hengt sér upp á smáatriðum en sjá ekki stóru málin.
Lausagangur hunda og katta hefur verið mikið í umræðunum undanfarið. Auðvitað er ámælisvert að mannfólkið sinnir ekki ferfættum heimilisvinunum eins og skyldi. Áður en við tökum að okkur dýr þá eigum við að vera meðvitað um hve þarfir þeirra eru og hvort við getum sinnt þeim á viðeigandi hátt. Ég er búin að eiga ketti allt mitt líf og get ekki hugsað mér að loka þá inni allan sólarhringinn. En þeir eru mjög heimakærir enda sinni ég þeim vel. Þegar köttunum er illa sinnt þá fara þeir á flakk og leita sér betra aðstöður annarstaðar.
Miklu alvarlegra mál en lausagangur katta þykir mér að glæpamenn ganga lausir svo árum skiptir og eru oft hættulegir sjálfum sér og öðrum. Fangelsin eru yfirfull og ekki pláss fyrir nema brot af þeim sem þyrfti að loka inni. Hér ganga lausir glæpamenn sem hafa rústað okkar þjóðfélag. Brot þeirra eru augljós en þeir mega jafnvel ennþá taka þátt í viðskiptalífinu, lögin okkar ná ekki til þeirra.
Eigum við ekki einbeita okkur að þessum mönnum frekar en að sjá hættu í hverju einustu kisu sem labbar yfir veginn?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.7.2010 | 09:37
Magma Energy og skúffurnar
Alvarlegasta mál þessa daga er kaup Magma Energy á á íslenskum orkulindum. Nú eru að koma upplýsingar um að dótturfyrirtækið Magma E. í Svíþjóð er bara til að nafni og engin starfsemi þar í gangi - semsagt skúffufyrirtæki af verstu gerð og bara stofnað til þess að sniðganga íslensk lög.
Ásgeir Margeirsson, framkvæmdarstjóri Magma E. hér á landi sagði í viðtali að fyrirtækið hefði fengið ráð og aðstoð iðnaðarráðuneytisins við kaup á HS orku. Ef þetta er satt, að iðnaðarráðuneytið hafi aðstoðað við að fara í kringum íslensk lög þá verða nú menn og konur á þeim bæ að athuga sinn gang. Ef það er hins vegar ósatt þá sýnir það glögglega hvað við getum búast við frá þessu "heiðarlegu" kanadísku fyrirtæki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.7.2010 | 09:42
Stórkarlalegt hjá Jóni Á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.7.2010 | 18:48
Of hraður akstur
Ég hefði sko ekki láta mér dreyma að ég myndi fá sekt fyrir of hraðan akstur. Venjulega þegar ég skrið á löglegum 90 km hraða á þjóðveginum er ég bara fyrir í umferðinni, stöðugur lestastjóri og snigill af verstu gerð. Samt var ég tekin á 99 km hraða um daginn milli Borgarfjarðar og Reykjavík þegar umferðin var frekar þung og ég flaut með bílastraumnum. Hefði ég ekið hægar þá hefði ég skapað hættu með því að hvetja hina að taka fram úr "sniglinum".
En hvað með það, ég var 9 km of fljót og verð að sætta mig við 10.000 kr. í ríkiskassann. Vonandi voru þá allir skráðir sem óku jafn hratt, það myndi hugga mig eitthvað. Vonandi verður einnig í framtíðinni tekið strangt á þeim sem aka á ótryggðum ökutækjum í umferðinni, þeim sem hafa trassað að fara með bílinn í skoðun og þeim sem aka um á nagladekkjum langt fram eftir sumri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)