Hrikalegt!

Svona lagað má bara ekki gerast! Hvernig var til dæmis borgað fyrir hlutabréfin í HS Orku? Með aflandskrónum? Hvernig var staðið að því að sniðganga íslensk lög með stofnun skúffufyrirtækis í Svíþjóð? Hvernig var núna samið um greiðslur? Með hlutabréfum í kanadísku móðurfélagi? Þetta finnst manni nú frekar ótrygga verðsetning á dýrmætum auðlindum sem geta malað gull - en ekki fyrir okkur hér á landi. Þetta er hrikalegt, það þarf að fara betur í saumana á þessum viðskiptum. Að svona skyldi fá að ganga og það eftir hruninu og öllum slæmum málum sem koma upp á yfirborðið. Getum við ekki lært neitt?


mbl.is Magma eignast 98,53% í HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að selja mólkurkúna til Magma Energy

Merkilegt hve lítið er fjallað í fréttunum um þetta stórmál. Magma Energy, þetta "sænska skúffufyrirtæki" er að eignast 98 % í HS orku. Fyrirtækið  kom bakdýramegin hér til landsins fyrir alls ekki löngu og náði að fara í kringum íslensk lög. Og hugsið ykkar: Með því að kaupa restin, rúmlega 50% í HS orku fær það einnig nýtingarrétt af allri orku sem finnst á Reykjanesi næstu 45 ár. Ásgeir Margeirsson var fljótur að skipta um stól og setjast í stjórn Magma Energy, flott hjá honum. En stjórnvöldin eru sofandi og segjast ekki geta gert neitt. Hér þarf allt önnur og skýrari lög um svona mál og það helst í gær.

Það verður spennandi að fylgjast með því þegar Reykjanesbær kaupir sína orku af Magma Energy á uppsprengdu verði. Þetta er nefnilega ekkert góðgerðafyrirtæki, bókandi ekki.

 


Sameining ráðuneyta

Ég er sannfærð um að sameining ráðuneyta er til hins góða. Það geta sparað talsvert að minnka batteríið og sum mál eiga þá ekki lengur til að þvælast milli stofnanna. Þá er ég sérlega að hugsa um heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytið. Hvaða ráðherrar eiga þá að víkja? Vonandi verður þetta ekki eintómt plott milli stjórnarflokkanna. Þeir sem hafa staðið sið best og hafa bein í nefi til að berjast fyrir sinn málaflokk, eru faglegir og hugsa ekki um sín eigin frama, eru jafnvel til að taka óvinsæla ákvarðarnir eru þeir sem eiga að sitja áfram. Bæði utanflokkaráðherrar hafa staðið sig vel og verða vonandi áfram. Þeir sem helst mætti fara finnst mér vera: Kristján Möller, Jón Bjarnason, Össur Skarphéðinsson, Álfheiður Ingadóttir og Katrín Júlíusdóttir.


Guðlaugur Þór, þinn tími er kominn

Guðlaugur Þór, þinn tími er kominn.

 

Eftir viðtal í Kastljósinu í gær finnst örugglega mörgum að Guðlaugur Þór ætti að taka pokann sinn og biðja um frí frá þingstörfum. Ég vitna nú bara í eina svari hans þegar spurt var um hvort rétt hafði verið að þiggja svona háa styrkir í kosningarbaráttunni. „Það voru engin lög og hver og einn setti sér reglur.“ Einmitt þetta vottar um siðgæði mannsins sem þótti allt leyfilegt vegna þess að það voru ekki lög til um allt. Og heyrið þið nú: Hann fullyrti að hafa ávallt unnið fyrir hag almennings. Ekki gat hann útskýrt þetta nánar. Hann vildi einnig meina að hann hafi alltaf farið eftir stöngustu reglum. En hvaða reglum? Og hver setti þær? Guðlaugur þóttist styðja sú hugmynd að allt ætti að vera gagnsært. Samt gat hann alls ekki hugsað sér að gefa upp hver styrkti hann í kosningarbaráttunni. Og til þess að kóróna allt þá fullyrti hann að almenningur bæri traust til hans. Ó já!

Viljum slíka siðblinda menn til að stjórna landið áfram?


Nú byrjar gamanið: Hjólum í vinnu

Ég hvet alla sem geta tekið þátt í þessu frábæru framtaki að prófa að vera með. Þetta er bara gaman. Og það sparar bensínpeninga. Auk þess er það holt og styrkjandi. Hvað viltu meira?

Hjólum í vinnu!


Magma Energy og Kerlingarfjöllin

Í Fréttablaðinu í dag 30.5. er sagt frá því að Magma Energy hefur haft viðræður við sveitarstjórn Hrunamannahrepps um rannsókn á virkjunarkostum í Kerlingarfjöllum.

Hugsið ykkur: Kerlingarfjöll! Það getur enginn fullyrt að það kemur hvort sem er enginn þangað (Þetta voru rökstuðningur fyrir Kárahnjúkavirkjunin á sínum tíma). Kerlingarfjöll eru náttúru- og útivistarparadís sem margir þekkja og hafa góða minningar til. Það er meira að segja mjög auðvelt að komast þangað.

En svo koma menn frá einhverju varasömu fyrirtæki sem hefur komist til landsins á afar varasömum forsendum og vilja rannsaka virkjunarkostir á þessu stórkostlegu svæði. Hvað er að? Er ekki komið nóg? við skulum vera á verði í sambandi við okkar auðlindir. Náttúrufegurð er auðlind, ekki gleyma því.


Skrapp - skrapp

Vorið er loksins að koma núna. Ekki er lengur ís á pollunum á morgnana, loftið er fullt af fuglasöng og hitastigið komst í tveggja stafa tölu á SV landi.

Bara ef maður þyrfti ekki lengur að heyra þetta skelfilega skrapp - skrapp hljóð þegar fólkið er ennþá að berja göturnar á nagladekkjum. Til hvers? Til að kosta þjóðfélagið hærra gjöld í viðgerð gatna? Til að bæta við loftmengun sem er virkilega nóg til af?

Er það ekki 15. april sem er síðasti dagur nagladekkja samkvæmt lögum? Mætti ekki loksins láta skussurnar taka upp budduna og borga sekt?


Heimurinn breytist

Margt sem sýnist vera gott og hagstætt getur allt í einu snúist í það að vera vont. Íslendingar dáðist fyrir alls ekki löngu að mönnum sem hugðust leggja heiminn að fótum sér og gerast útrásarmenn. Einn þeirra jafnvel komst í hóp þeirra sem þóttust vera ríkastir í heiminum. Nú bara nokkrum árum seinna er hann sennilega í hóp þeirra sem skulda mest.Davíð Oddsson var dýrkaður stjórnmálamaður. Hann var sá sterki leiðtogi sem fólkið treysti. Hann var hafinn yfir allt gagnrýnið, ekki síst af hans eigin flokki. Þetta traust fylgdi honum meira að segja inn í Seðlabankann þótt hann gerði ekkert gott þar. Og eftir hrunið fékk hann að vera ritstjóri Morgunblaðsins. Nú er hann flúinn af landi brott og þorir ekki að svara fyrir því hvort hann hefur gert rétt eða rangt. Skildi einhver hér á landi bera ennþá traust til hans?Forsetinn okkar varð vinsæll fyrir það að neita að skrifa undir Icesave- samninguna. Örstutt seinna þegar rannsóknarskírslan kom út missti hann aftur vinsældina. Og nú hefur hann ollið ferðaþjónustunni ómælt tjón með einhverjum yfirlýsingum um yfirvofandi hættu á að Katla gæti gosið.Eyjafjallajökullinn var fallegt fjall. Snjóhvítur jökull krýndi topp þess. Fjallið veitti þeim sem bjuggu fyrir sunnan skjól fyrir köldum norðanvindum. Þarna var með bestu landbúnaðasvæðum á landinu. Jafnvel var ræktað korn sem er nú ekki títt á köldu landinu okkar. En nú hefur þetta fallega fjall breyst í skrímsli og spúað ösku yfir þau svæði sem nutu mest góðs af skjóli þess. Svona getur heimurinn og viðhorf til einstakra mála breyst á stuttum tíma.

Uppgjör hans Bjarna B.

Formaður Sjálfstæðisflokksins ætti að skoða sín eigin mál og taka pokann sinn alveg eins og varaformaðurinn. Hvernig geta menn sem eru flæktir í siðlaus peningaviðskipti staðið í ræðupúlti með skilti fyrir aftan sig sem stendur á "byggjum upp". Hvers konar uppbygging er þá væntanlega? Áframhaldandi siðleysi og eiginhagsmunapot? Þorgerður Katrín skynjaði allavega að pólitíski ferillinn hennar er sennilega búinn - allavega í bráð, kannski þangað til almenningur er búinn að gleyma. Það væri best fyrir flokkinn að hún víki, sagði hún. "Best fyrir flokkinn"! Þannig hugsuðu menn á þeim bæ lengi og gera enn. Hvaða mál skipti þjóðin?
mbl.is Lýsa yfir stuðningi við Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valgerður í viðtali, en ekki Davíð

Nei, hún var ekki sannfærandi, hún Valgerður Sverrisdóttir í Kastljósinu í gær. En hún allavega þorði að koma í viðtal, hún má eiga það. Hún sýnir þannig meira kjark og maður sem var einu sinni kallaður gungur og drusla og er flúinn til útlanda núna. Mikið hafði Steingrímur J. rétt fyrir sér að nota þessu orð á sínum tíma á aðalhrunstjórann.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband