Hrægammar á ferð og flugi

Nú er allt á útsölu hér , virðist vera. Menn sem bjuggu til kreppuna eða að minnsta kosti hlökkuðu til að hún yrði, bíða nú spenntir hvað er hægt að græða á henni. Alex Jurshevski er einn af þeim og hann viðurkenndir mjög opinskátt í viðtali að hann ætlar sér að kaupa núna upp eignir á brunaútsölu og græða feitt. Og hann nennir ekki að bíða lengi, ætlar helst að fara þangað þar sem mönnum liggur mikið á svo að business gengur sem hraðast. Ætla hann er ekki á leiðinni hingað? Gera eins og Ross Beaty hjá Magma Energy sem keypti stóran hlut í íslensku orkufyrirtæki frekar ódýrt og fyrir aflandskrónur?

Okkar helstu auðlindir, orkan og vatnið eru í hættu. Það liggur á að setja lög um að þær eru ekki til sölu. Og svo þarf að koma hina auðlindina, fiskurinn í sjónum, aftur í hendur þjóðarinnar þar sem hún á að vera.


Færri bílar á götunum

Segið þið nú ekki að allt sé vont í kreppunni! Á vísir.is er hægt að fræðast um það í dag að bílafjöldinn á vegum landsins er farinn minnkandi og maður þarf að fara 4 ár aftur í tíma að sjá alveg eins. Olíufélögin eru að kveinka sér yfir minna sölu á dýru dropunum því að landsmenn eru ekki alveg búnir að gleyma hvernig hægt er að spara og draga úr óhóflegri neyslu. Sumir taka jafnvel strætó sem þótti 2007 afar hallærislegt! Hvað svo að hjóla ferðir sínar og það þótt það rigni og blæsi á móti. Gott fyrir heilsuna, gott fyrir umhverfið, gott fyrir budduna.

Hefur samningsstaðan okkar batnað?

Mikið var talað um það fyrir þjóðatkvæðagreiðsluna að samningsstaðan okkar myndi batna ef við sendum eitt stórt og ákveðið "nei" áleiðis til útlanda. Mér sýnist í fyrstu núna að allavega Hollendingarnir sýna ekki velvild heldur aukna hörku. Viðbrögð þeirra eins og "við þurfum ekki að semja núna við Ísland" eru auðvitað mjög slæm fyrir okkur, herða bara á þumalputtaskrúfunum.

Ál- grátkórinn

Í dag er mjög góð og vel rökstudd grein í  Fréttablaðinu sem Magnús Jónsson veðurfræðingur skrifaði. Hún fjallar um skynsama og hagkvæma notkun auðlinda hér á landi. Framtíðarhag þjóðarinnar felst nefnilega ekki í einhverja rányrkju þar sem ekki er spáð í morgundaginn. Við eigum auðlindir, nóg af því sem þarf bara að nota á sjálfbæran og skynsaman hátt, spá frekar í gæði heldur en magnið. En það gerum við ekki með því að planta hér niður fleiri risaverksmiðjur sem fá orku á gjafaverði og eru með okkar framtíð í vasanum hjá sér.

En það er bara alveg sama hvert litið er: Formaður samtaka  atvinnulífsins, formaður ASI, formaður samtaka iðnaðarins, allir sameinast í grátkór um fleiri álver. Er ekki tími kominn til að við "mokum" frekar undir lítil og meðalstór fyrirtæki sem skapa langflest störf hér á landi?

Í því sambandi langar mig að varpa hér fram hvort Helgi Magnússon, formaður samtaka iðnaðarins væri ekki til að biðja Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra afsökunar fyrir mjög ómálefnaleg gagnrýni nýlega. Ég fagna því að við höfum loksins fengið umhverfisráðherra sem fer eftir lögum og tekur málstað þess sem henni er falið.


Takk fyrir "Draumalandið"

Ég ætla að þakka þeim sem sjóða saman dagskrána hjá Ríkissjónvarpinu fyrir að sýna "Draumalandið", og það meira að segja á góðum tíma á sunnudagskvöldinu. Þessi mynd eiga allir landsmenn að sjá. Og þeir sem syngja ennþá í álkórnum og sjá ekki neina aðra lausn á atvinnuuppbyggingu hér á landi ættu að sjá hana tvisvar á dag.

Þetta bjóst maður við

Nú er hátt í þeim rísið, þeim Bjarna Ben. og Sigmund D. Og ekki kemur manninum á óvart að nú öskra þeir sem hæst að nauðsýnlegt væri að kjósa nýja ríkisstjórn. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkurinn hafa tafið allar umræður um Icesave til að koma ríkisstjórninni frá, það er alveg augljóst. Fleiri og mikilvægari mál biða afgreiðslu en stjórnarandstæðan vill ekki viðurkenna það. Hver dagur sem Icesave- afgreiðsla tefst kostar þjóðina mikið. Formönnum hrunflokkana er sama. Þeir vilja bara komast aftur til valda til þess að stoppa rannsóknarferilinn, það er þeim mikið mál. Hvers vegna? Hvers vegna vinna þeir ekki af heillindi að leysa málin sem mest liggur á?
mbl.is Ríkisstjórnin þarf að þétta raðirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið að finna Finn

Nú er loksins búið að finna Finn Ingólfsson, fyrirverandi ráðherra í Framsóknarflokki og seðlabankastjóra. Og ekki er fallegt sem þar var að finna, fullt af óheiðarlegum viðskiptum. Þessi maður er aldeilis búinn að moka í eigin vasa og útnota aðstöðurnar sínar.

Á maður að kjósa?

Ég efast stórlega um að margir vita um hvað er verið að kjósa núna nk. laugardag. Það snýst ekki um hvort við borgum Icesave- skuldirnar eða ekki. Það snýst  um hvort við samþykkjum samningar  frá því í haust sem Forsetinn neitaði svo að skrifa undir eða ekki. Ég var hingað til fastlega ákveðin að greiða atkvæði með þessum samningum og klára þetta mál loksins sem hefur sett svo margt hjá okkur í biðstöðu. En núna þegar betri samningar eru væntanlega er eiginlega alveg óþarfi að kjósa því gamla samningurinn mun falla úr gildi hvort sem er. Miður er að fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan er að verða að eins konar farsi. Ég hefði vilja fá á sínum tíma atkvæðagreiðslu um Kárahnjúkavirkjunin eða einkavæðingu bankana. Ég er mest hrædd við að hrunflokkarnir (Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur) munu hamra á því eftir kosningunni að þjóðin stendur ekki lengur bak við núverandi ríkisstjórn og reyna allt sem þeir geta til að komast í kjötkatlana aftur. Aðalgjammarar Bjarni Ben. og Sigmundur Davíð sem koma fram daglega í viðtöl og hafa yfirleitt neitt merkilegt að segja bera vott um slík áætlun. Ég ætla bara að minna á stóra Noregslán sem Sigmundur D. ætlaði að útvega til að bjarga þjóðina. Hvað varð úr þessu? Hver tekur mark á svona mönnum?

Kreppan er líka jákvæð

Ég veit að ég geri mig óvinsæla núna að tala um kreppuna á jákvæðum nótum. Það eru jú margir í verulegum erfiðleikum fjárhagslega.

Nú heyrist raddir að það þarf að koma neysluna aftur í gang og efla hagvöxtinn. Margrét Kristjánsdóttir, formaður Verslunar og Þjónustu var í útvarpsviðtal í morgun á rás 2. Hún vildi auðvitað að krónan styrkist og innflutningsfyrirtækin stæðu betur að vígi. Hún sagði einnig eitthvað á þann veg að nú þyrfti fólkið í landinu sem ætti ennþá peningar milli handa taka sig á og eyða meira svo hjólin gætu byrjað að snúast upp á nýtt. Formaðurinn N1 kvartaði sáran yfir því að fólkið væri að spara eldsneyti og það lá við að hann afsakaði alla verðhækkun á bensín með þessum samdrætti.

Ég get ekki gert neitt af því, en mér finnst að við höfum gott af því þurfa að hugsa okkar gang í neyslu- og eyðslumálunum. Auðvitað er það bara jákvætt að fólkið leggur stóru eyðslufreku ökutækjunum og nota sparneytnara bíla, plana betur hvert það þarf virkilega að fara á bíl og hvar er hægt að komast á annan hátt. Okkur veitir ekki af að draga úr loftmengun á þennan hátt.  það er jákvætt að menn hugsa sig um áður en þeir kaupa allt þetta glingur sem það þarf ekki á að halda.

Ef við hugsum hnattrænt og vistvænt þá komumst við að því að kreppan hefur sína góða punkta.


Urðunarstaður Ísland

Í sjónvarpsfréttum í gær var sagt frá því að hingað til lands var flutt talsvert magn af ónýttu tóbaki frá Póllandi til urðunar á Álfsnesi. Og þeir sem stóðu fyrir þessu þóttust ekki vita að það þarf leyfi fyrir slíkt. Dæmigert! Allt sem er ekki stranglega bannað  það er örugglega í lagi, sérlega ef enginn fylgst með hvort er farið eftir lögum.  Svona hugsa menn hér upp til hópa. Við erum með fullt af góðum lögum en eftirfylgni er vægast sagt ábótavant.

Hvaða farmar af hvaða efni munu koma næst her til Íslands til förgunar? Við eigum jú stórt og "ósnortið" land sem gæti tekið við ýmsu. Og samviskulausir aðilar gætu grætt á þessu. Verum á verði!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband