30.12.2009 | 18:06
Sjálfstökuflokkarnir náðu sínu fram
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2009 | 21:22
Skref í rétta átt
![]() |
Hagnaður skilyrði starfslokasamninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.12.2009 | 17:44
Gleðilegt ár
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2009 | 11:34
Bílaskuldir og flautur
Mótmælagleði hér á landi er að vaxa frá ári til árs, kannski ekki slæmt. En hvað var fólkið að meina með því að þeyta flautur til að mótmæla hækkun bílalána? Var það að mótmæla eigin heimsku, blindni og eyðslubrjálæði? Taka stórt lán fyrir glæsijeppa sem hefði mátt sleppa?
Ég vorkenni fólki sem var að fjárfesta í nauðsýnleg húsnæði. Það þurfa jú allir þak yfir höfuðið. En þeim er ekki vorkunn sem steyptu sér í skuldir fyrir einhver stöðutákn í góðærinu. Dómgreind þeirra var bara ekki betri en þetta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.12.2009 | 09:18
Að ganga í takt við flokkkinn
Það gerðist í gær á þingi að Ögmundur fékk klapp frá stjórnaandstæðingum. Hann fékk klapp fyrir að greiða ekki atkvæði með Icesave- málinu. Nú kunna þeir sem tilheyra hrunflokkunum sér ekki fyrir kæti og klína allt sem hægt er á Þingflokkinn Vinstrigræna. Heyrst hefur t. d. að Guðfríður Lilja hefur verið sent heim í tæka tíð svo hún fengi ekki tækifæri að greiða atkvæði á móti. Hvað meina menn með þessu? Á hún að eignast barnið sitt í þingsalnum?
Eru þingmenn Vinstrigræna stjórnlaus her? Sundurtættur flokkur? Ég met þennan flokk einmitt fyrir það að menn ganga ekki endilega allir í takt, að menn þora að greiða atkvæði í samræmi við sína sannfæringu. Þetta er einmitt rétt skref í áttina að lýðræðinu. Svona hefur aldrei tíðgast í Sjálfstæðisflokknum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2009 | 21:42
Dýr eru ekki leikföng
Það er yndislegt að eiga heimilisdýr og það er mjög þroskandi fyrir börn að alast upp með dýr og þurfa að taka ábyrgð á því að sinna þeim. En áður en ákvörðun er tekin að fá dýr inn á heimili þá er gott að athuga: Er ég til að gefa minn tíma reglulega til að sjá um nýja heimilisvininn? Er ég til að þrífa upp á eftir dýrinu? Er ég til að borga fyrir dýralækni ef til þarf? Finnst mér jafn spennandi að eiga dýrið þegar það er orðið fullvaxið og ekki bara lítið og sætt? Ber ég virðingu fyrir eðli dýrsins? Sumstaðar verða lifandi dýr gefin í jólagjöf. Því miður er oftast ekki hægt að fara að skipta þegar gjöfin fellur ekki nógu vel í geð. Svo það er mikilvægt að hugsa sig vel um. Kannski hentar tuskudýr bara betur sem finnur ekki til þegar því er hent í ruslið.
Í sjónvarpsfréttum í kvöld sást smá myndskeið úr dýragarði í Japan þar sem mörgæsir þurftu að vappa um í jólasveinabúningi og voru eltar af stórum hópi af krökkum. Og hvað litlu mörgæsirnar voru fyndnar og sætar! Þetta er ekki goð fyrirmynd. Dýr eru ekki leikföng.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2009 | 10:29
Hver myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.12.2009 | 09:31
Bravó, Fjölsmiðja!
Bravó, Fjölsmiðja!
Þorbjörn Jensson og Fjölsmiðjan fengu viðurkenningu um daginn.
Loksins, langa mig að segja. Þarna fer fram frábær og óeigingjörn starfsemi sem hugar að ungmennum sem eiga erfitt og hafa ekki fundið sína leið á lífsferlinum sínum. Það virðist þó vera til nokkur stór hópur unglinga í þjóðfélaginu sem hefur ekki þrífist í venjulegum grunnskólum, hefur orðið fráhverf náminu og ekki fundið sig í reglubundinni vinnu. Úrræði fyrir þessa ungmenna er oft af skornum skammti og gripið verður allt of seint inn. Þá er svo oft komið í algjört óefni og erfitt að snúa þessa einstaklinga aftur á rétta braut.
Í fjölsmiðjunni fær ungt fólk tækifæri að læra ýmist: Að hafa reglu á hlutunum, vinna vinnuna sína, umgangast fólk og vinna á sínum vandamálum. Svo virðist að þarna finna þeir einnig að einhverjum er ekki sama um þá.
Frábær staður og frábært starf sem byrja á réttum enda á vandanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2009 | 20:26
Jólajóla
Yfirleitt leiðist mér allt jólastússið og sérlega allar auglýsingar sem við þurfum að láta yfir okkur ganga. Hugsa ykkur alla vinnu og allt hráefni sem fer til spillis þegar framleiddar eru auglýsingarbæklingar sem koma svo inn um bréfalúgurnar. Ekki er spurt hvort við viljum fá þetta. Miðinn á bréfalúgunni hjá mér hefur aldrei verið virtur. Ég set þetta auglýsingardrasl beint í endurvinnslu án þess að lita við. Bara prinsipp!
Hvað kaupir fólkið í jólagjafir? Handa fólkinu sem á allt? Vandræði og aftur vandræði. Á mínu heimili höfum við fyrir löngu ákveðið að hætta þessu gjafarugli. Jólin eru notalegir dagar þar sem við njótum þess að vera saman. Og það er nóg.
Í dag komst ég samt í smá jólaskap. Fór á tónleikar hjá lúðrasveit Svanur í Reykjavík. Fjölbreitt og skemmtileg dagskrá og miður hve fáir nutu þess að hlusta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2009 | 19:58
Til hamingju, Brynja
Uppáhaldsbúðin mín á afmæli, 90 ára afmæli. Brynja á Laugarveginum hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Maðurinn minn gerðu stundum grín af mér þegar ég stoppaði þar frekar en hjá einhverja tískubúð. En þegar manninum finnst gaman að föndra og dunda sér, reyna pínu að smíða eða laga til þá er Brynju- búðin auðvitað gullnáma. Þarna fæst bókstaflega allt. Og afgreiðslan hefur alltaf verið með eindæmum elskuleg. Hvar finnst það ennþá að leitað er endalaust að einni skrúfu eða ró sem vantar sárlega? Hvar fær þú alltaf góð ráð við flest allt, og það ókeypis?
Til hamingju með afmælið, Brynja. Vonandi fáum við áfram að njóta þess að slíkar búðir eru til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)