19.11.2009 | 11:56
Skatturinn, hvað eru menn að væla?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2009 | 08:45
þeir eiga líka að bera ábyrgð
![]() |
Ráðherrar fyrir dóm? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 19.11.2009 kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2009 | 12:21
Margir eineygðir
Á leiðinni minni í morgun frá Mosfellsbænum til Hvanneyrar mætti ég ótrúlega marga bíla með biluð ljós, sumir alveg eineygðir svo maður vissi ekki hvort það kom á móti manni mótorhjól eða bíll. Og svo er þetta eina ljós miklu skærari og blindir manninn óþægilega. í mínu gamla heimalandi er mjög strangt eftirlit með svona enda snertir þetta umferðaöryggið. Ef lögreglan stoppar þig með biluð ljós í Þýskalandi (og hún gerir það pottþétt) þá fær þú plagg sem segir á hvaða tímabil þú þarft að vera búinn að laga þetta. Og að vera gripinn aftur eftir þennan tíma verður ansi dýrt.
En lögreglan hjá okkur hefur sennilega ekki tíma að fást við slíkan tittlingaskít. Þar er alltaf að skera niður mannskapinn þó að verkefnin verða meira og stærra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2009 | 22:27
Ómálefnalegur flutningur sjálfstæðisflokksins
Nú eru stjórnarandstæðingar að væla og þykjast hafa töfralausnir tilbúnar. þeir í sjálfstæðisflokknum vilja ekki sjá þrepahækkun á tekjuskatti. Þeir vilja frekar eins og þeim einum er lagið velta vandann áfram á komandi kynslóðir. Að vilja innheimta skatt af inngreiðslum lífeyrispeningana, hvað þýðir þetta í raun? Seinna meir þegar gamla fólkið fær lífeyrisgreiðslurnar sínar þá fær ríkissjóðurinn ekkert. Tekjur ríkisins verða þá semsagt minna og þetta tap þurfa börnin og barnabörnin okkar þá að jafna með einhverjum hætti.
Hvað er svona slæmt við að hækka skatta þeirra sem hafa góðar tekjur? Ég hef aldrei látið mig dreyma að fá 500.000 kr. á mánuði, ekki einu sinni 400.000 , þrátt fyrir mikla yfirvinnu. Mér skilst að þessir aumingjar sem vinna fyrir minna en 300.000 á mánuði munu fara betur út úr nýju skattakerfinu en áður. Þetta finnst sjálfsstökuflokknum sem hefur alltaf verið málsvari efnafólksins auðvitað afleitt.
Stjórnmálaflokkur sem hefur ýtt undir þróunin sem olli hrunið ætti ekki að hafa hátt um aðgerðirnar sem ríkisstjórnin núna leggur til. Það eru bara engar góðar kostir til, bara mis-slæmar. Má ekki leggja aðeins þyngra bagga á þá sem eru færir um að þola þetta í staðinn fyrir að ráðast endalaust á garðinn þar sem hann er lægstur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2009 | 18:13
Hvað er þjóðhagslega mikilvægt?
Í dag las ég á forsíðu Fréttablaðsins að lagning suðvesturlínu gæti ógnað vatnsbólum höfuðborgarsvæðisins. En að línan væri talin "þjóðhagslega mikilvæg". Það má nú deila yfirleitt um hvort álverið í Helguvík sé nokkuð þjóðhagsleg mikilvægt.
Við hér á landi teljum að við séum með hreint loft og besta vatn í heimi. Samt erum við á hraða leið að skemma þetta. Hreina og góða vatnið sem okkur finnst sjálfsagt að ganga að daglega er í hættu. Það er áætlað að fara með framkvæmdir í sambandi við háspennulínu inn á vatnsverndarsvæðið. Hvað þýðir þetta? Jú, menn eru að vonast að ekkert kemur fyrir, engin mengunarslýs gerast.
Eigum við ekki að gera ráð fyrir að "eitthvað gæti gerst" í staðinn fyrir að vonast alltaf að "allt gengur vel" eða "ekkert kemur fyrir"? Er þetta ekki svolítið 2007?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2009 | 23:02
Hvað varð um Sigmund Davíð og Höskuld?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.11.2009 | 08:06
Áfram, garðyrkjubændur!
Mig langa að senda garðyrkjubændunum baráttukveðjur. Þeir ætla að mótmæla í dag hækkuðum álögunum á þeirra starfsemi. Á nú að drepa þessa atvinnugrein endanlega, sem er þó mjög atvinnuskapandi hér á landi. Garðyrkjan skapar verðmæti. Íslenskt grænmeti er í háum gæðaflokki, og mig hryllir við tilhugsunina að þurfa að kaupa nýmeti sem er flutt að langar leiðir. Mér er með öllu óskiljanalegt að stóriðjufyrirtækin fá að starfa hér undir vildakjörum hvað rafmagnsverðið snertir en "græna stóriðja" á að borga 30 % meira fyrir orkuna. Þetta gengur ekki upp.
Hvar er hugmyndin um sjálfbærni? Hvar er atvinnusköpun? Hvar er nýja Ísland?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2009 | 11:44
Aldrei aftur hlutabréf
Hvað gekk á í Hæstarétti, þegar dómi héraðsdóms í máli Vilhjálms Bjarnasonar var snúið við? Hvaða menn ráða þar ríkjum? Nú kann ég ekki mikið í lögfræði, en þegar svona dómar eru kveðnar upp þá er greinilega eitthvað að í okkar dómskerfi og við eigum ennþá langt í land með "nýtt og óspillt Ísland".
En skilaboðin eru skýr: Við litlir hluthafarnir sem lögðu einu sinni fé í fyrirtæki til þess að geyma og jafnvel ávaxta einhverjar sparipeningar voru sviknir og rændir - og þar var samkvæmt lögunum allt í lagi virðist vera. Ég mun allavega aldrei aftur kaupa hlutabréf á meðan menn sitja í Hæstarétti sem kveða upp slíka dóma.
![]() |
Skelfileg skilaboð frá Hæstarétti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.10.2009 | 09:10
Davíð, hjálp!
Hver ætti svosem að leiða þessa vesalings þjóð úr efnahagskreppunni? Auðvitað aðalhöfundur hrunsins og einkavinavæðingar sjálfur, Davíð Oddsson. Allavega finnst yfir 20 % þetta í nýlegri skoðunarkönnun. Okkur er svo sannarlega ekki bjargandi. Ætlum við í sama farið aftur sem kom okkur í vanda? Höfum við ekkert lært? Síðastliðinn vetur norpaði maður í kulda á Austurvöll og tók þátt í að mótmæla þessu liði sem hefur ekkert gert nema að moka í eigin vasa og vasa þeirra sem voru í "innsta hringnum". Það er nú ekkert lengra síðan.
En kannski kemur þetta allt ekki alveg á óvart. Þegar við skoðum söguna þá var kallið eftir sterkan leiðtoga hávær eftir heimskreppunni. Og Hitler með sín loforð um betri tíð með blóm í haga og næga atvinnu fyrir alla átti léttan leik í Þýskalandi.
Sterkir leiðtogar eru varasamir á krepputímum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.10.2009 | 12:48
Kreppan er ekki slæm með öllu
Nú hafa kannarnir sýnt að íslenskum ungmennum líður jafnvel betur núna en á "góðærinu" þar sem foreldrar margra barna voru svo skelfilega uppteknar í að skaffa og eiga sem mest. Glögglega kemur í ljós að mikilvægast fyrir börnin er samvist með foreldrunum, ást og umhyggju en ekki dót og glingur.
Og Mac Donalds er að yfirgefa landið. Ég segir nú bara húrra fyrir þessu. Ekki þurfum við á ruslfæðu - stað að halda sem flytur þar að auka allt hráefnið inn frá útlöndum. Vonandi hefur fyrirtækið sem ætla að taka við þessum stöðum rænu á því að velja íslenskar matvörur og selja matinn í aðeins umhverfisvænna umbúðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)