30.9.2009 | 15:30
Trúr sínum sannfæringum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2009 | 16:40
Hugsað til komandi kynslóðar
Mér létti satt að segja að ríkisstjórnin framlengdi ekki viljayfirlýsingu vegna álvers á Bakka. Við megum bara ekki ráðstafa mest alla orku sem við getum aflað til fárra stórra aðila. Við megum ekki skilja komandi kynslóðir eftir með land þar sem er búið að framselja allar auðlindir, virkja allt sem hægt er að virkja og eyðileggja það sem dregur fjölda ferðamanna hingað: náttúruna!
Það er gott og hollt að staldra við núna og hugsa um stefnuna sem við erum að taka. Uppbygging smærra fyrirtækja mun henta okkur mun betra, mun skapa til lengdar miklu fjölbreyttara og öruggara atvinnulíf en að treysta á eitt risaálver sem gleypir alla orkuna á svæðinu og gerir okkur algjörlega háð þessu fyrirtæki. Hvernig er nú reynsla bara af álverinu á Austurlandi? það var gríðarleg uppsveifla í örfá ár, atvinna fyrir mörg hundruð manns (sem að vísu fáir Íslendingar stunduðu), en þenslan sem fylgdu því hafði mjög neikvætt áhrif á efnahagsástand hér. Óhófleg bjartsýni, bruðl og siðleysi reið okkar litla land þangað til loftbólan sprakk.
Ekki vil ég sjá að tekið verða einhverja ákvarðarnir í flýti sem bjarga kannski ástandið í örfá ár en skilja eftir vandamál handa komandi kynslóðir. Við eigum flest allir börn og barnabörn sem okkur þykir væntum, er það ekki?
![]() |
Viljayfirlýsing ekki framlengd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.9.2009 | 20:59
Hvar er nýja Ísland?
Já, nú skyldi byrja upp á nýtt, moka flórið og henda öllu út sem er spillt og siðlaust. Svona hljómaði eftir bankahruninu sem er rúmlega ár síðan.
Hvað hefur gerst? Glæpamennirnir sem lögðu landið okkar í rúst ganga laust, iðrast engu og rífa jafnvel kjaft. Eða eru í felum, bíða bara betra tíð þangað þjóðin er búin að gleyma hver átti hvað og hvar og hvers vegna. Koma svo fram úr skotgröfunum og kaupa upp eignir þjóðarinnar fyrir slikk.
Þetta er þegar byrjað og enginn skilur neitt í þessum leikfléttum. Maður sem þóttist geta setið upp í tölvunni öll tengsl fjárglæframanna sem myndi varpa ljós á hver er sekur og hver ekki var stoppaður af. Er landið okkar virkilega eitt fúafen þar sem ótrúlega margir eru flæktir í fjármálamisferli? Eru svo margir hræddir að sannleikurinn má ekki lita dagsins ljós?
Og nú til þess að kóróna allt er aðalhöfundur frjálshyggjunnar og einkavinavæðingar orðinn ritstjóri í virtasta dagblaði á landinu! Og til að gera enn verra þá eru samkvæmt könnun á vísir.is ( hversu áreiðanleg svona könnun nú er) yfir 30 % ánægðir með Davíð sem ritstjóri.
Er þjóðinni bjargandi? Ef einhver sómatilfinning býr í fólkinu þá segir sem flestir upp Moggann - núna!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.9.2009 | 23:11
Þetta var gaman
Í gær tók ég þátt í hjóleríið niður í bæ, svonefnda hjólreiðalest. Margir spyrja auðvitað hvers vegna svona á sér stað. Auðvitað hjólar maður þegar hann vill og getur. En hitt er annað mál: Vera sýnilegur, láta sjást og heimta viðunandi aðstæður fyrir þennan ferðamáta, sem hefur svo marga góða kostir: Hæfilega líkamsrækt og útivera, ódýrt, mengar ekki, tekur lítið pláss í umferðinni, heimtar ekki rándýra bílastæði. Að ferðast á reiðhjól er ekki bara tómstundagaman. Þetta er valkostur í staðinn fyrir einkabíl. Hvenær fá hjólreiðamenn góðar og greiðar leiðir innan bæjar og á milli bæjarfélaga?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2009 | 15:03
Að nýta auðlindir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2009 | 00:36
Jafnrétti til náms?
Auðvitað vitum við öll að það þarf að draga saman seglinn og spara. Tveir málaflokkar eru samt afar viðkvæmir fyrir niðurskurðinn. Það þarf kannski ekki að hafa mörg orð um heilbrigðismálin. En menntamálin mega ekki heldur við því að það sé sparað mikið þar.
Í grunnskólunum á að vera allt gjaldfrjálst: Kennsla, bækur, ferðir o.fl. það skiptir kannski ekki svo miklu máli hvort barnið fær nýja skólatösku eða fullt af nýju dóti. Ef til vill dugar margt frá síðasta vetri, ef farið var vel með hlutunum. Það má jú kenna börnunum að fara vel með öllu því sem þau fá.
En þegar komið er í framhaldsnám þá versnar staðan. Þá er mikill munur á því hvort ungmennin eiga foreldrar sem geta fjármagnað námið eða ekki. Inritunargjöldin í skólana eru orðin bísna há. Skólabækurnar fást ekki gefins og ef ein bók kostar 20.000 krónur þá er nú spurningin hvort allir eiga efni á því. Það er sorgleg staða að efnilegt ungt fólk þarf að hverfa frá náminu vegna þess að það kemur ekki úr efnuðum fjölskyldum. Hvert stefnir?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2009 | 21:55
Já eða nei?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2009 | 23:09
Kaffihúsið við Esjuna
Það viðraði ekki vel til Esjugöngu í dag, frekar hvasst og rigningin á næstu grösum. Ég og betri helmingurinn minn fóru því bara "letihringinn": Um skógarsvæðið við Mógilsána. Þetta er að vísu mjög skemmtilegur hringur, tekur um klukkutíma og margt er að skoða á leiðinni.
Við Esjurætur er komin kaffistofa og við kíktum inn og drukkum kaffi og með því. Flottur staður og lofa góðu. Frá því að kaffihúsið við Nauthólsvíkina var "stolið" á sínum tíma hef ég ekki komið í jafn skemmtilegt kaffihús svona eftir útivist. Vonandi verður þessi starfsemi þarna uppi þrátt fyrir að opnunin kom frekar seint í sumar. Gott mál og til fyrirmyndar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2009 | 20:36
Stærsti árlegi íþróttaviðburður hérlendis
Í dag var haldið Reykjavíkurmaraþon og aftur var metþátttaka. Ég óska öllum hlauparanum til hamingju. Það vinna jú allir sem komast í mark og sigra sjálfan sig. Hlaupaleiðin í maraþoni í Reykjavík er eflaust með fallegra leiðum sem þekkjast víðar í heiminum.
Ég vildi að fjölmiðlarnir gerðu þessum íþróttaviðburði betra skil. Í kvöldfréttum áðan var meiri tími sett í að spjalla um enskan og íslenskan fótbolta. Er þetta virkilega svona merkilegt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2009 | 22:00
Aftur á heimaslóðum
Þetta var langt og dásamlegt frí. Eftir að maður var búinn að vinna meira eða minna öll sumarfríin í ferðamennskunni, spara og leggja til hliðar fyrir efri árin þá var það núna þannig að ég nennti ekki lengur að spara. Fólkinu eins og mér hefur verið illilega refsað fyrir að vera reglusamt, sparsamt og nægjusamt þegar ósköpin dundu yfir síðastliðið haust. Ég tapaði flest allt sem ég var búin að leggja fyrir. En það sem var eftir eyddum við núna í langt ferðalag um Þýskaland. Og það var gott. Aldrei hafði ég komið til þeirra svæða sem voru einu sinni austur- þýsk. Það var mjög sérkennilegt að fara um þessar slóðir sem voru rammlæstar á meðan ég bjó ennþá í Þýskalandi fyrir tæpum 30 árum. Ég hef aldrei fyrr fundið eins mikið fyrir því að vera af þýskum uppruna eins og í þessu ferðalagi.
Skrýtin tilfinning að koma heim til Íslands. Ennþá allt í óvissu eftir 4 vikur, ekkert virðist hafa gerst á meðan. Jú, nokkrir menn sem áttu stóran þátt í hruninu komu fram með hroka og kenndu allt öðru um hvernig fór. Nöfn eins og Finnur Ingólfsson voru loksins nefndir í fjölmiðlunum. Lengi hafði ég saknað það nafn meðal þeirra sem voru með miklum umsvifum í "góðærinu".
Það sem mér finnst best á að vera komin heim er svala loftið, vindurinn, laugarnar og góða vatnið. Við gerum okkur ennþá ekki grein fyrir hvað við erum ríkir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)