Borgararfundurinn

Jæja, þá sýndi ríkissjónvarpið loksins þennan merkilegan fund, þótt fyrr mætti vera. Svona á auðvitað að sýna í beinni, enda um mikilvægari mál að ræða heldur en fótbolta, handbolta og Eurovísion- keppni.

Mér fannst að reiði í fólkinu fer að magnast. Ræðurnar voru góðar og fróðlegar. En þegar fólkið á eftir tók til máls var það ekki alltaf mjög málefnalegt. Það hefði t.d. alveg mátt sleppa að sýna ókurteisi í garð þeirra sem mættu á pallinn, enda nenntu þeir að mæta öfugt við stærsta stjórnarflokkinn landsins. Stóllinn sjálfstæðisflokksins var tómur og segir það okkur greinilega hvernig hugsunarháttur í garð þjóðarinnar er á þeim bæ.

 


Sólarkaffi

Þegar ég flutti til Íslands var ég strax hrifin af sumum hefðum her á landi. Til dæmis fannst mér - og finnst enn - Þrettándinn mjög skemmtilegur dagur. Að kveðja jólatímabilið á þennan hátt er einfaldlega snilld. Þorrablótið er einnig mjög sérstakt. Að gera sér dagamun á dimmu tímabili ársins er bara nauðsýnlegt.

Á mörgum stöðum landsins lætur sólin ekki sjá sig í langan tíma. Ísfirðingar halda þann dag hátíðlega þegar sólin gægjist í fyrsta skipti aftur upp fyrir fjallið og bjóða í sólarkaffi. Þetta er einnig gert á fleirum stöðum landsins. Í Mosfellsbænum þar sem ég á heima fær ég sólina inn um stofugluggann í dag þann 14. 1. Þetta er gleðidagur og tilefni til kaffiveislu. Og munum við öll hér á landi sem oftast sjá til sólar í framtíðinni.


Einsemd

Nei, það er ekki gott að vera kominn á efri árin á Íslandi. Margt hefur verið lofað og vegna efnahagsástands var ekki staðið við það. Sorglegt dæmi er það um hann Kristján Eiríksson sem býr aleinn í stóru fjölbýlishúsi og á ekki von á þjónustu sem var lofað þegar hann keypti íbúðinni. Sú var væntanlega mjög dýr enda er iðulega okrað á gamla fólkinu. Ætli hann hafi ekki rétt á bótum því hann fékk ekki það sem hann keypti. Svo er alveg afleitt að leyfa manninum ekki að fá hund eða kött. Það er vitað að fólk sem býr eitt hefur mjög gott af slíkum félagsskapi. Ekki mun trufla það nokkur sálu í þessu stóru og tómu húsi.

Um daginn var ég einmitt að velta fyrir mér hvort einsemd gamla fólksins á ekki eftir að aukast mjög. Nú flytur margt ungt fólk til útlanda til að fá vinnu og betri lífskjör. Eftir verður gamla fólkið sem fær aldrei eða allavega mjög sjaldan heimsókn frá börnunum og barnabörnunum. Kreppan sundrar fjölskyldur: Börnin og jafnvel makinn þarf að fara út fyrir landsteinana til fá vinnu. Þetta er bara einn af vondu afleiðingunum efnahagsástandsins.


mbl.is Einbúinn við Suðurlandsbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er glæpur

Framvirkur gjaldmiðlaskiptasamningur, hvað felst í þessum orða- bandorm? Mér skilst að fjárfestingarfélag Kjalar sem var stór hluthafi í gamla Kaupþing tók lán í erlendri mynt, en þó án þess að menn þurfa að bera áhættuna á slíkum viðskiptum. Það þurfa hins vegar þeir ólánsömu menn að gera sem trúðu bönkunum að myntkörfulánið væri afar góður kostur. Þeir sitja nú í súpunni, en Kjalar- menn vilja fá milljarðar tilbaka! Þetta er hápunktur ósvifni. Hugsa ykkur, menn sem eru meðsekur um fall krónunnar vilja stórgræða á því.

Jæja, það á að skoða málin, er sagt. Ég held að til þess að uppræta þetta spillingarbæli hér á landi þurfa erlendir aðilar að koma að málinu. Og svo þarf að taka til og herða lög svo að fjárglæframenn fá aldrei aftur tækifæri til að valda stórtjón.


Hvar varst þú, Björn Bjarnason?

Borgarafundir eins og í gær eru vísir að lýðræðislegu þjóðfélagi. Undanfarnir mánuði, alveg frá því að bankarnir fóru á hausinn hafa átt sér stað kröftug mótmæli og ekki eru allir sammála um hve langt má ganga í þeim. Ekki heldur hve lögreglan á að ganga langt ef það sýður upp úr. þetta eru mjög nauðsýnlegar umræður og mér finnst að þetta kemur dómsmálaráðherranum við. En hann lét ekki sjá sig, eina ferðin enn. Maðurinn hefur stundað það í sinni ráðherratíð að láta sig hverfa þegar óþægileg málefni bera að garði.

Björn Bjarnason, ef þú ert hræddur um að svara almenningnum, ef þú ert þreyttur og áhugalaus orðinn í þínu starfi þá ættir þú að standa upp úr stólum og láta annan taka við sem sýnir meira áhuga og ferskleika.


Burt með einkavæðingaráðherra!

Nú er komið meira en nóg af einhverjum handahófskenndum aðgerðum heilbrigðisráðherra. Hvaða sparnaður skyldi vera fólgin í því að flytja sjúklingar langar leiðir um allt land - og starfsfólkið líka? Á landsbyggðinni eru samgöngur bara þannig að það eru takmörk fyrir því hvað veikt fólk þarf að fara langt til að komast undir læknishendur. Dæmi Patreksfjörður - Ísafjörður sýnir glöggt að svona gengur ekki upp. Fyrir utan þetta þá þarf veikt fólk einnig sálrænan stuðning, þetta er mikilvægt fyrir batann. Ég man með hryllingi eftir því þegar ég lenti í slysi í Þýskalandi langt frá heimilinu mínu og þurfti að dvelja í nokkrar vikur á spítala, var alein og yfirgefin og fékk aldrei heimsókn. Það mun vera lítið um heimsóknir til sumra sjúklinga með nýja skipun hans Guðlaugs Þórs.

Hvaða hagnaður er í því að loka spítalann í Hafnarfirði og flytja starfsemina til Keflavíkur? Mig grunar illilega að þarna spila flokkspólitíkin inn í. Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ er jú svo flokkstrúr sjálfstæðismaður.

Heilbrigðisráðherra Guðlaugur Þór ætti ekki að fá leyfi að valsa yfir allt og alla og hunsa álit fagmanna í heilbrigðisgeiranum. Hann er einn af alverstu ráðherranum sem hefur verið uppi lengi. Vesalings fólk sem veikist núna!


mbl.is Ráðherra segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er iðnaðarráðherra að spá?

Hvað er Össur iðnaðarráðherra að spá? Álverðið er allstaðar í heiminum á niðurleið, álfélögin draga saman seglin og segja upp þúsundum starfsmanna. En samt skal reisa álver í Helguvík.  Þetta er ekkert nema glórulaus þrjóska. Menn verða bara að viðurkenna að áldraumurinn um skjótan gróða er loftbóla eins og margt annað sem átti að gera okkur rík. Svo spyr ég einnig hvort maðurinn kann ekki að reikna. Orkan fyrir fullbyggt álver í Helguvík er ekki til staðar nema það sé virkjað á fleiri stöðum, þar á meðan á umdeildum stöðum eins og í neðra Þjórsá. Og Össur lætur frá sé fara ummælin eins og :" Ef við fáum ekki næga orku fyrir fullbyggt álver í Helguvík þá verður álverið þar bara minna". Hvaða samningar er verið að gera við Norðurál? Ég held að menn hlaupa á eftir einhverja óskhyggju og hunsa staðreyndir.
mbl.is Alcoa segir upp 13.500 manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagræðing

Skólinn er byrjaður aftur á nýja árinu. Nú stendur til að "hagræða" skólareksturinn. En hvað ég elska þetta orð. Þvílík fallega hljómandi hugtak fyrir jafnt neikvæða athöfn. Hagræðing þýðir sparnaður, niðurskurður, skerðing, uppsögn. Sá sem fann upp þetta orð ætti að fá verðlaun fyrir að klæða svona neikvætt í jafn falleg föt og hér ber vitni.

Frábær leið að spara

Undirfarnir dagarnir voru með eindæmum blautir hér á SV horninu. Mér fannst stundum að ég væri að aka í eintómum lækjarfarvegum. Hjólför sem myndast á hverjum vetri sökum nagladekksnotkunar eru jafnvel hættulegar í mikilli bleytu. Hvað skyldi það kosta þjóðfélaginu að bæta þessa götuskemmdir ár eftir ár? Fyrir þann pening væri hægt að reka myndarlegt kerfi í almenningssamgöngum. Kannski væri hægt að sleppa allar þær hækkunar sem nýlega voru lagðar á sjúklingana? Kannski þyrfti ekki að skera niður jafn grimmilega í skólunum eins og stendur til?

Ég er ekki mikið fyrir boð og bönn, en landinn er ekki mjög skynsamlega hugsandi virðist vera. Hvernig væri nú að banna þennan nagladekk- ósóma?


Nýja árið

Gleðilegt nýtt ár. Mér finnst nýársdagurinn miklu skemmtilegri en gamlársdagurinn er. Ég fór hálfpartinn í fýlu í nótt með að sjá hvað fólkið var til að eyða miklu í þessa flugelda. Kreppa hvað?

Í hádegi fórum við hjónin í Nauthólsvík og ég skellti mér í sjóinn. Hann var 3 gráður  og ósköp hressandi. Gaman að sjá allan þann fjölda sem mætti þarna. Seinna fékk ég mér gönguferð meðfram sjónum í rigningu og roki og mér leið mjög vel.

Þessi fyrsti dagur ársins er skemmtilegur. Rólegur friðsæll dagur eftir öllum látum. Ég vona bara að allir sprengju- sérfræðingar sjái sóma sinn í að hirða upp eftir sér allt draslið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband