Gleðilegt sprengi- ár

Nú fer þessi nótt að nálgast þegar heimilisdýrin liggja undir rúm með skelfingu í augunum. Nú skal sprengja og hafa hátt! Ég skal ekki eyða eina einasta krónu í svona vitleysu. Eins og öll síðustu árin mun ég gefa til góðgerðamála í staðinn. Hjálparsveitir ættu að afla peningar með öðrum hætti: Taka gjöld af öllum þeim sem fara upp á hálendið illa búnir án þess að hlusta á veðurspá og lenda svo í vandræðum.

Sérstaklega í ár fær ég í maga að hugsa um það að í miðausturlöndunum er fólk ekki að fagna sprengjunum. Á gasa- svæðinu er að myrða saklaust fólk, þarna er að fremja þjóðarmorð á palestínamönnunum. Þarna rigna sprengjur yfir börn og gamalmenni, þarna er að eyðileggja allt sem heitir framtíð og von. Á Ísland að standa þegjandi hjá? Við eigum að slita tafarlaust stjórnmálasamband við Ísrael, þótt Bandaríkin styðja þetta ríki enn.


Þjóðarmorð

Það sem er að gerast á Gaza-svæðinu er algjör hryllingur. Þarna eru Ísraelsmenn að fremja þjóðarmorð. Öll ríkin heimsins sem hafa einhverja réttlætiskennd eiga að slíta stjórnarsamstarf við Ísrael. Ég vona að Íslendingar eru ekki á meðal þeirra sem umbera slíkt ódáðaverk sem er í gangi að hálfu Ísrael. Þvílík villimennska á ekki að liða.
mbl.is Hundruð á Lækjartorgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólaóskir

Merkasti dagur ársins var í gær: Sólin fer aftur að hækka á lofti. Ég var að leggja síðasta hönd á jólaundirbúningi. En skemmtilegast var að fara út á Keflavíkurflugvöllinn til að sækja strákinn okkar sem dvelur með okkur yfir jólin og aðeins lengur, þökk sé "Flugfélag allra landsmanna" sem smurði svo vel á fargjöldin sitt hvoru megin við hátíðarnar að fátækur námsmaður ákvað að skrópa fyrsta viku á nýja árinu til að geta keypt miða á þokkalegu verði.

Við fjölskyldan munu ekki taka þátt í innkaupaæði landsmanna heldur njóta þess að vera saman sem mest. Það er besta jólagjöfin finnst mér. Við munum einnig fara í kirkju og biðja guð að blessa þetta land og gefa ráðamönnum þjóðarinnar gæfu og visku til þess að taka rétta ákvarðarnir: Láta kreppuna ekki bitna á þeim sem  minnst eiga, standa vörð um velferðarkerfið og skera ekki niður í menntakerfinu.

Svo óska ég öllum landsmönnum gleðilega hátíð og farsælt komandi ár, góðan skammt af æðruleysi, bjartsýni en einnig vökul augu til að fylgjast með mikilvægum málum í þjóðfélaginu.


Hvar eru norðurljósin?

Alveg frá því að Einar Ben. ætlaði að selja norðurljósin hafa sumir Íslendingar hugsað stórt. Það átti að taka heiminn með trompi og gerast ríkir og frægir á metstíma. Og þannig fór sem fór. Fleiri og fleiri raddir heyrist nú sem tala um skynsamlega uppbyggingu, um lítil sprotafyrirtæki og hugvit. Tíminn stóriðjunnar hefur runnið sitt skeið og hefur kostað okkur mikla fórnir.

Það er dimmt yfir Ísland þrátt fyrir fegursta vetrarveður. Stjörnubjart hefur verið í margar nætur, en norðurljósin hafa ekki láta sjá sig. Tókst einhverjum að selja þau eins og margar aðrar náttúruperlur hafa verið selt? 


En um mótmæli

Ég hef farið í ansi mörg mótmæli hér á landi og hef haldið að hér ríkti lýðræði og skoðunarfrelsi. Aldrei fannst mér þörf á því að fela mig eða hylja andlitið því mér fannst að ég var að gera rétt að koma mínum viðhorfum á framfæri. Hvað getur friðelska manneskja gert annað en skrifa greinar, taka þátt í mótmælum og kjósa eftir sínum sannfæringum?

Í mótmælunum sem nú standa yfir sér maður fullt af fólki sem hylur andlitið sitt. Það finnst mér mjög alvarlegt. Þetta fólk hefur hingað til ekkert gert af sér og ætlar sennilega ekki að fremja glæp. Getur verið að þessir einstaklingar eru einfaldlega hræddir við að sýna sig? Gæti það verið að mótmælagleðin veldur seinna meir því að fólkinu sé mismunað  t.d. með á fá vinnu, fá  styrk? Er virkilega að skrá fólkið í mótmælunum með myndartökum til að refsa því seinna á einhvern hátt? Hvers vegna eru mótmælendur ekki að sína andlitið sitt?


Jól, hátíð ljóss og friðar

Jólin koma og ég er farin að hlakka til að komast í frí. Börnin í skólanum eru æst, jafnvel meira en oft áður. Við höfum fullt í fangi með að aðskilja litla slagsmálahunda og verja þau rólegu fyrir árásum. Á skólalóðinni er snjóboltastríð í gangi og enginn er spurður hvort hann vill vera með. Róleg sögustund, kertaljós og tónlist hitta takmarkað í mark, en við gerum okkar besta.  Æskan er sennilega í sykursjokki af öllu nammi og gosi sem er í boði núna. Kreppan hvað?

Síðasta laugardag átti ég samtal við þýskan blaðamann á Austurvelli eftir mótmælunum. Hann furðaði sig á hversu margt fólk væri í búðunum að versla og á kaffihúsum að fá sér hressingu. Honum fannst engin kreppumerki að sjá. Ég sagði honum að við værum snillingar að fresta vandamálin fram yfir áramót. Honum fannst einnig merkilegt hversu friðsamleg mótmælin væru ennþá miðað við hversu lengi þau hafa staðið yfir. Í mörgum löndum væri fyrir löngu mælirinn fullur. En við hér á Íslandi erum bara mjög friðelskandi þjóð. Kannski best að gleyma fram yfir jólin að þjóðin er á hausnum, glæpamennirnir ganga ennþá laus og ríkisstjórnin situr mátt- og aðgerðalaus og bíður eftir kraftaverk.


Hamfarirnar sjö

Á þýsku heitir þessi saga úr biblíunni "die 7 Plagen". Mig rámar í að það var í sambandi með dvöl Ísraelar í Egyptalandi og þeirra ósk að mega snúa heim. Þá sendi guð 7 náttúruhamfarir í röð, ég man þetta ekki alveg í smáatriðum. En Faraó  gafst loksins upp og leyfði Ísraelsmönnunum að fara.

Hér á landi hafa nú þegar 2 hamfarir riðið yfir: Bankagjaldþrotið og sýkingin í síldinni. Sú þriðja er í uppsiglingu: Áform um fleiri álver standa á brauðfótunum og stóriðjudýrkendur þurfa loksins að viðurkenna að ekki er sniðugt að fókusa um of á eina atvinnugrein.

Hvað kemur svo næst? Harður vetur? Óveður og flóð? Eldgos? Bakreikningar Impregilo?

En eftir 7 mögrum árum koma aftur góð ár ef við höldum rétt á spöðunum. Verum vakandi og leyfum ekki sama genginu að spilla landið okkar og efnahag aftur. 


Mannréttindabrot

Nú er komið til tals hjá löglærðum mönnum að það yrði mannréttindabrot  framið með því að rannsaka bankahrunið og allt sem leiddi til þess. Hér væri farið inn á einkalíf fólksins. Gott og vel, það má vel verið að fólkið ætti helst að eiga sitt einkalíf í friði. En hér á landi var framið glæpur, var stundaður þjófnaður í stórum stíl. Saklaust fólk hefur misst allt sem það átti og var búið að vinna fyrir í mörg ár. Hvað er um einkalíf margra fjölskyldna þar sem allt var lagt í rúst? Hvað um einkalíf þeirra sem komast ekki í nám út af peningaleysi? Hvað um einkalíf þeirra sem þurfa læknishjálp og eiga ekki efni á því. Einkalíf flest okkar allra var raskað þegar bankarnir hrundu. Börnin okkar munu búa við skertri skólaþjónustu. Margir munu ekki fá vinnu til að sjá fyrir sig og sína.

Má virkilega ekki hrófla við einkalíf þeirra manna sem eru meðsakir í þessum málum? Ef það á bara að vernda sökudólgana en ekki fórnalömbin glæpsins þá er eitthvað að í okkar réttarkerfinu.


Reglusamur og duglegur

Í gær átti ég stutt viðtal við eldra mann sem hefur unnið allt sitt líf, er duglegur og reglusamur. Hann vinnur sem lítill verktaki í húsasmiðum. Enginn fúskari og heiðarlegur inn að beini. Það sem hann býr til stenst öllum kröfum og er einstaklega vel gerð af fagmanni.

Þessi maður situr uppi núna með 4 óseld hús og er að gefast upp. Þessi hús ætlaði hann að klára og selja til þess að hafa það gott þegar hann er kominn á þann aldur að líkamleg vinna verður of erfið.

Hvað gerðist síðustu árin að reglusamt og duglegt fólk verður refsað en fjárglæframenn græða á sínum glæpum gagnvart þjóðinni?

 


Harka í mótmælunum

Nú færist greinilega harka í mótmælin. Þetta var ég búin að spá . Svona verður það þegar það er ekki hlustað á fólkið. Auðvitað er ekki skemmtilegt að sjá ofbeldi og skemmdaverk. Mótmælin eiga að vera friðsamleg og málefnaleg eins og það hefur hingað til verið. En ég hef samúð með þessu unga fólki sem finnst komið nóg af því að það sé ekki hlustað á réttmæta kröfurnar um að ráðamenn axla loksins ábyrgð. Það eru ekki réttu viðbrögðin hjá ráðherrunum sumum að vera ekki til tals, sitja í glerbúrinu sínu og vonast að reiðibylgjan fjarar út. Þessi bylgja mun ekki fjara út, hún mun þvert á móti eflast á nýja árinu þegar jólin eru að baki og timburmenn fjármálasukksins segja á fullu til sín.
mbl.is Mótmælendur eiga ekki að bíta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband