Pakka niður mótmælaspjöldin?

Ætli það er óhætt að pakka niður mótmælaspjöldin? Er heiðarlegra og færara fólk á leiðinni að taka við stjórn? Og: Fer Davíð loksins að fjúka, kannski án þess að fá vel greidd fyrir "velunnin störf"?

Nú þegar hef ég fengið hamingjuóskir frá útlöndum. Það er að taka eftir okkur hér á skerinu, og mér sýnist jafnvel að viðbrögðin eru loksins jákvæð.


Getur þú lánað mér?

Þegar ég ólst upp á eftirstríðsárunum í landi sem var lagt í rúst af valdasjúkum og veruleikafirrtum glæpamönnum þá kenndu foreldrar mínir mér að vera heiðarleg. Þeir kenndu mér að vera sparsöm og nýtin og þakklát fyrir það sem ég fékk. Frekjugangur var ekki liðinn á æskuheimilinu mínu.

Fyrstu árin mín hér á Íslandi komu mér sú gildin vel að gagni sem ég var alin upp við. Fyrir utan lán sem við tókum til að koma okkur upp húsnæði höfum við aldrei skuldað neitt.  Við áttum ekki bíl og notuðum reiðhjól og strætó til nauðsynlegra ferða. Stundum varð ég vitni af því að unglingar báðu strætóbílstjórann um að "lána sér" fyrir heimferðina. Þá höfðu þeir eydd strætópeningana í sælgætiskaup eða spilakassa á meðan þau voru að bíða eftir strætó. Einu sinni neitaði bílstjórinn að "lána", því hann vildi meina að hann fengi þetta aldrei tilbaka sem rétt var. Krakkinn fékk ekki far heim heldur var skilinn eftir. Foreldrar hans voru alveg brjálaðir og fóru með þetta í fjölmiðlana. Satt að segja fannst mér að bílstjórinn hafði rétt fyrir sér. Og ungmennið hafði einnig gott af því að læra muninn á að lána og að gefa.

Mikið hefði íslenska þjóðfélagið haft gott af því að menn hefðu lært þennan mun snemma á lífsleiðinni. Kannski stæðum við þá ekki í botnlausum skít upp á háls núna.


Er Ingibjörg ómissandi?

Það liggur alveg í augum uppi að stórhluti í Samfylkingunni vill kosningar í vor enda er það mjög skynsamlegt, bæði fyrir flokkinn og samfélagið. Hver dagur sem beðið er lengur er tapaður dagur. Hvernig virkar þetta í stjórnmálaflokkum ef formaðurinn er alvarlegur veikur og óstarfhæfur? Tekur þá ekki sjálfkrafa varaformaðurinn við? Og er álitið allra í flokknum einskís virði? Ef svo er, til hvers erum við þá með marga þingmenn? Er þá ekki jafn gott að vera bara með einn sem ræður? Mér finnst að lýðræðið í flokkunum er ekki alveg að virka.

Hvar eru mörkin?

Í gær var ég í miðbænum og tók þátt í friðsömum mótmælum. Og í nótt fylgdu mótmælin mér inn í svefnið: Mér fannst eins og ég kallaði alla nóttina áfram "vanhæf ríkisstjórn". Ekki fannst mér vera harka í fólkinu fram eftir deginum í gær. Hvar í öðrum löndum gerist það til dæmis að allir stoppa hávaðann og lætin af því að jarðarför er rétt hjá? Nú, það flugu nokkur egg og önnur matvæli, þetta er frekar saklaust. Í öðrum löndum kveikja reiðir mótmælendur sem eru búnir að fá nóg í bílum og húsum. Hér lætur "skríllinn" það duga að kveikja í vörubrettum og gömlum jólatrjám.

Ekki finnst mér viðeigandi að fólkið lætur reiðina bitna á lögreglumönnunum. Þeir eru bara að vinna vinnuna sína og eiga ekki að láta gjalda fyrir því að stjórnvöldin loka ennþá eyrunum og vilja ekki sjá. Leiðindaatvíkin virðist aðallega eiga sér stað þegar líður á nóttina. Þeir sem eru þar að verki fara yfir mörkin alveg eins og sumir sem eru seint á ferðinni á stórhátíðum. Tökum til dæmis menningarnóttina. Þarna eru alltaf einhverjir ölvaðir og æstir og skemma fyrir hinum.

En nú vonar ég að maður fer ekki miklu fleiri ferðir með pottum, bjöllum og spjöldum í miðbæinn. Það virðist loksins eitthvað að gerast og kosningar í nánd. Og örþreytir lögreglumenn geta hvíld sig.


Piparúði er neyðarvörn

Ég veit ekki betur en að piparúði er skaðlegt heilsu og er bara leyfilegt í neyðarvörn. Á mótmælafundinum í dag var engin ofbeldi, maður er reyndar hissa hve friðsæl mótmælin eru ennþá. Það er búið að valta yfir þjóðin á skítugum skóm og enginn vill taka ábyrgð á því hvernig komið er.  En að lögreglan er að beita piparúða bara til þess að koma fólkinu í burtu er algjört hneyksli. Björn Bjarnason Army ætti að fá betra þjálfun til að bregðast rétt við.

Svo spyr ég einnig: Hvar stendur að börn og unglingar mega ekki taka þátt í mótmælum? Þetta er fólkið sem erfir landið og allar skuldir sem fjárglæframennirnir hafa stofnað og virðist ekki vera ábyrgðir fyrir. Og það í skjóli ónýttra ríkisstjórnar.


mbl.is Þjóðin var í Alþingisgarðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betur skríll en skræfa

Enn og aftur eru "skrílslæti" á Austurvelli. Því miður kemst ég ekki. Ég er kennari og fær ekki frí til þess að mótmæla. Ég er líka einasti vinnandi maður á mínu heimili, hinir eru búnir að missa atvinnu. Ég er með ykkur þarna sem þora að láta í ykkur heyra og sýna hugrekki til þess.  Hugsa ykkur: Alþingi fór í mánaðar jólafrí! Eins og allt sé í himnalagi og ekki sé þörf á aðgerðum.  Á maður til dæmis að trúa því að það sé ekki hægt að taka spillta auðmannagengið og láta það borga  það sem þeir eiga ennþá af okkar peningunum? Það virðist alltaf vera hægt að taka litla manninn og refsa þegar hann lendir í vanskilum. Eins og grátlega dæmið á Suðurlandi sýnir.

Nú er komið nóg. Burt með þetta gjörspillta gengið! Kosningar og betri löggjöf núna!


Það fjölgar í mótmælunum

Nei, við höfum engu gleymt og við munum ekki gleyma hvernig græðgisvæðing fór með okkar litla land. Og við munum ekki gleyma þeim mönnum sem stjórnuðu - og stjórna enn. Ef um nokkur stjórn er að ræða. Frekar skal kalla það óstjórn. Manninum verður óglatt að fá alla fréttir um gruggug og siðlaus viðskipti sem áttu sér stað.

Þúsundir manna mættu aftur á Austurvöll í friðsöm mótmæli. Erlendir fréttamenn sýna þessu mikinn áhuga. En hér á innlendum vettvangi er lítið gert úr þessu. Í Mogganum í dag var pínulítil mynd, í sjónvarpinu örstutt skot. Það var mótmælt á mörgum stöðum á landinu um helgina, mótmælunum fer fjölgandi.

Hvenær kemur sá dagur að menn axla ábyrgð?


Hann á afmæli, hann Davíð

Til hamingju með afmæli, Davíð Oddsson. Ég var að spá að mæta í afmælispartí með mótmælaskiltinu mínu. Á því stóð: "Mjóu bökin bera nóg". Þú skilur vonandi hvað ég á við. Almenningur er að sliga undan farginu sem þú og þínir hafa lagt á okkur með frjálshyggjunni og afleiðingar hennar. Þú hefur unnið okkar meira tjón en nokkur maður á siðkastið. Þú hefur verið í þínu feitu embætti og hlegið bara að okkur. Þú hefur ekki unnið vinnuna þína. Þú hefur tekið rangar ákvarðarnir sem eru okkur svo dýr að við vitum ekki ennþá hvernig við getum borgað fyrir þessu.

En til hamingju með afmælið. Ég vona að þú getur notið þess.


Er þetta afsökunnarbeiðni, Geir?

Það er nú mikið að Geir Haarde uppgötvar að þetta ár verður mjög erfitt. Við sem tilheyra skrílnum hafa fattað þetta fyrir löngu. En Geir, ætlar þú ekki ennþá að axla ábyrgð? Ætlar þú ekki að reka Davíð úr Seðlabankanum fyrir öll afglöp sem þessi maður hefur unnið? Ætlar þú ekki loksins að viðurkenna að þessi ríkisstjórn hefur ekki unnið vinnuna sína eins og skyldi? Ætlar þú ekki loksins að segja af þér og leyfa fólkinu að kjósa? Núna!
mbl.is Geir: Árið verður mjög erfitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokksþing Framsóknar

Ég kann frekar illa við þennan flokk, get ekki gert neitt að því. Hann er í þvílíku afneitun hvað ábyrgð þess flokks snertir. Í samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn hefur þessi flokkur staðið fyrir öllu þessu sem olli hrun hagkerfisins. Kárahnjúkavirkjun var boxað í gegn og er sennilega dýrasti kosningarvíxill sem var búið til. Þennslan sem þessi risavaxin framkvæmd olli hafði griðarleg áhrif á allt hagkerfi Íslands. Framsóknarflokkurinn tók líka þátt í að gefa kvótann til einkavina, að einkavæða bankana. Þessi flokkur er í minum augum gjörspilltur. Mér verður óglatt að heyra Valgerður Sverrisdóttur tala. Það er eins og hún man ekki lengur tilbaka heldur en til síðasta kosningu, að hún man ekki eftir því þegar hún var iðnaðar- eða útanríkisráðherra.

Þessi flokkur á að hreinsa algjörlega til í sínum röðum og losa sig við allt þetta fólk sem  er gjörspillt og hugsar bara að skara eld að sína köku. Hann verður ekki trúverður á annan hátt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband