24.11.2008 | 15:52
Að segja bara upp
Það var svolítið góður punktur í Spaugstofunni: Af því ráðamennirnir ætla ekki að axla ábyrgð og fara frá eftir þeir eru búnir að klúðra flest allt sem var hægt að klúðra þá segir þjóðin upp. Hugsið ykkur hvað það væri nú skondið: Skilja Geir, Davíð, Solla, Árna Matt.,Björgvin og fleiri bara eftir í súpunni og fara! En er það annars ekki að gerast? Unga, duglega og framtaksama fólkið fer að flýja landið, er að sækjast eftir betra líf þar sem ekki himinháar skuldir bíða þeirra og barnanna þeirra. Allir þeir sem hafa kraft og dugnað munu athuga sinn gang, það er ég hrædd um.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2008 | 14:06
Heldur þú að vonin heldur?
Nýafstaðin yfirlýsing forystumanna stjórnaflokkana var nú bara svolítið skondið. Bæði Ingibjörg og Geir ofnotuðu tvær sagnir: Vona og halda. Halda þau í vonina eða vona þau að allt haldi? Hverslags svör eru þetta sem við fáum stöðugt? Ég held að... Ég vona að... Geta þessir stjórnmálamenn aldrei svarað neitt? Vita þeir ekki neitt eða vilja þeir ekkert segja? Og þá: hvers vegna?
Viðtalið um daginn við fjármálaráðherra var ekkert skárra. Árni færðist ávallt á undan að svara. Uppáhaldssetningin: "Ég get ekki tjáð mig um þetta að svo stöddu". Ó, hvað ég elska svona svör!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2008 | 15:00
Hvað um siðgæði?
Ég tel mig frekar vera heiðarleg manneskja. Ég hef unnið alveg frá því að ég kláraði námið fyrir salt í grautnum mínum. Ekki hef ég svikið undan skatt, alltaf borgað mín skerf í þjóðarbúið. Ég hef aldrei skrópað í vinnunni og alltaf reynt að gera mitt besta. Fyrir utan þetta hef ég ekki lifað um efni fram, verið nægjusöm og ánægð með að hafa nóg að borða og þak yfir höfuðið. Fyrir efri árin var ég búin að spara dálítið, átti eitthvað af hlutabréfum og smá upphæð í bankabók.
Svo gerist það að ónýtir og sjálfsumglaðir stjórnendur gæta ekki því sem þeim er treyst fyrir. Og það sem verra er, að þeir afsaka jafnvel þennan hóp ævintýramanna sem settu Ísland í gjaldþrot. Það má ekki einu sinni krefjast eitthvað af því tilbaka sem þessir menn tóku í leyfisleysi frá mér og öðrum.
Skilaboðin eru skýr: Farið þið bara að brosa og horfa fram á veginn. Snúið þið bökunum saman og þrælið þið meira, borðið þið minna og sofið þið í tjaldi. En bendið þið ekki á neinn sem er sekur, það þýðir ekkert, við erum allir í klíkunni.
Er ekki hætta á því að heiðarlegt fólk missir undir þessum kringumstæðum trú á sjálfan sig? Er ekki líklegt að það fer að breyta um lífsstíl þegar heimurinn sem það trúði á hrynur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2008 | 12:51
Hver lýgur?
Maður er orðlaus yfir öllum þessum mótsögnum sem koma fram í kringum efnahagshrunið á Íslandi. Hver lýgur? Eða hver lýgur mest?
Davíð segir að hann hefði varað við vandamál bankana snemma í vor. Hann hefði haldið fundir og bent á hættuna. Merkilegt að viðskiptaráðherra kannast ekki við neina slíka fundi. Iðnaðarráðherra ekki heldur. Var bara ráðherrum Sjálfstæðisflokksins boðið? Kom það hinum ekkert við? Var fólkið á landi ekki treystandi að vita af þessu? Okkar er hins vegar treystandi að borga feitt fyrir allt þetta klúður núna. Seðlabankastjórnin er ekki með goð spil á hendi. Annaðhvort voru bankastjórarnir ekki sínu starfi vaxnir eða þeir hafa vísvitandi blekkt þjóðina. Hvað er verra? Ekki veit ég það, en eitt er visst: Í báðum tilfellum er ástæða að segja af sér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.11.2008 | 15:45
Hvar eru eignir þeirra?
Þessir glæpamenn, þetta gráðuga og siðlausa gengi sem hefur gert íslenska ríkið svosem gjaldþrota, hvar eru þessir menn núna? Og hvar eru eignir þeirra. Ég er mjög hrædd um að þeir hafa komið sitt úr landi í tæka tíð og falið sínar slóðir. Þeir eru í felum og vonast að þetta allt mun gleymast. Seinagangurinn í okkar ráðamönnum hefur hjálpað þessum mönnum að koma sitt í burtu. Var ekki hægt að beita "Gordon Brown - aðferðina" og frysta eignir þeirra og gera upptækar?
Ég er ekki til að borga skuldirnar þeirra sem tefluðu of djarft. Ég átti ekki þátt í því pókerspili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2008 | 11:34
Hvar má ekki spara
Ísland er í mínus, það er vitað. En samdrátturinn og sparnaðarprógramm hjá ríkinu og sveitarfélögum legst vonandi ekki mikið á:
1. Börnin okkar. Niðurskurður í skólarekstrinum mun bitna á þeim sem síst eiga það skilið.
2. Veikt fólk. Heilbrigðiskerfið má ekki fara í rúst. Að sinna ekki veiku fólki hefur bara í för með sér meira kostnað seinna.
3. Gamalt fólk. Það væri hreinn og beinn þjófnaður að taka frá öldruðum þá peninga sem þeir eru búnir að vinna sér inn með starfinu sínu.
4. Almenningssamgöngur. Nú þegar bíllinn er að vera lúxus hjá fátæku fólki er meira þörf en áður að hafa góðar almenningssamgöngur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2008 | 14:54
Hvar má spara
Það er gott mál að við hér á landi lærum að spara. Einnig hjá ríkinu!
1. Það má alveg strika út alla "dátaleikir" hér á landi, sérstaklega ekki leyfa breskum dátum að koma hingað á okkar kostnað til að fara í byssuleik.
2. Minnka flottræfilsháttinn í sendiráðunum víðar um heim. Spurning hvort það má ekki loka eitthvað af þeim eða allavega nýta húsnæði saman með öðrum þjóðum. Afdankaða stjórnmálamenn mega alveg fara á elliheimili eins og annað fólk.
3. Laga loksins eftirlaunareglurnar embættismanna.
4. Draga úr dýrum gatnaframkvæmdum, t.d. mislægum gatnamótum sem eru hvort sem er umdeildar.
5. Strika út ferðapeningar ráðherra. Það þarf ekki að hvetja menn til að vera mikið á flakki á kostnað ríkisins. Menn geta örugglega gert margt í samskiptum í gegnum tölvuna - ef þeir finna rétta takkana og valda enska tungu nógu vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2008 | 14:54
Þakklát fyrir að fá að vinna
Mikið óksöp eru fréttirnar skelfilegar um vinnumissi margra hér á landi. Með þessum ofurháum stýrivöxtum er endilega að ganga frá mörgum fyrirtækjum. Hvað ætluðust menn með því fyrir stuttu að hækka þetta í 18 %? Eru þeir alveg að missa alla glóruna?
Ég er núna mjög þakklát fyrir það að hafa haldið mig við kennarastarfinu. Í þessu starfi er áfram nóg að gera. Þó kaupið er ekki upp á marga fiska þá hef ég lært að spara og vera hófleg í neyslu. Þetta kemur að gagni núna. Maður verður bara að vera þakklát að fá áfram að vinna og hafa einnig heilsu til þess. Ekki eru allir svona vel settir núna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2008 | 11:34
Mótmælum áfram
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2008 | 11:13
Bretar í dátaleik?
Í Fréttablaðinu í dag er góð grein sem Þórarinn V. Þórarinsson skrifaði: "Varnamál á villigötum". Mikið er ég sammála honum.
Eigum viðvirkilega að leyfa breska hernum að koma hingað í dátaleik til þess að "verja Ísland"? Fyrir hverjum? Bretar sjálfir hafa gert versta innrás á landið okkar sem hefur verið gert í manna minni. Í ofanálag eigum við svo að borga þennan skrípaleik sem þessi heræfing er. Er ekki allt í lagi?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)