Allir glaðir?

Rúmlega 2 vikur eru til jóla. Allir eru glaðir og hlakka til. Er það?

Austurvöllurinn fylltist aftur af fólki sem mótmælti. Þó hefði maður viljað sjá fleiri. Það er okkar allra hagsmunarmál að uppræta spillingu og reka menn fyrir slæleg vinnubrögð sem komu þjóðinni á kaldan klaka. Og koma í veg fyrir að sama siðlausa gengið ris upp eins og afturgöngur og leikur sama ljóta leikinn upp á nýtt. Hrægammarnir eru nú þegar farnir að safnast í kringum eignirnar sem eftir eru og vonast til að krækja sér í vænan bita.

En margir kusu að fara frekar í jólainnkaup en í mótmæli. Þeir sem misstu vinnuna eiga örugglega góðan tíma að ráfa um í verslunum og láta sér dreyma um betra tíð. Hagkaup í Skeifunni er opið allan sólahringinn! Gaman að fara þangað kl. 5.00 eftir svefnlausa nótt með martröðum og áhyggjum. Verst að margir hafa ekki efni á því að kaupa nokkurn skapaðan hlut. En Hagkaup lánar fyrir jólainnkaupunum. Og nýtt kortatímabil byrjar. Allir glaðir!


Samfylking, hvað nú?

Mér finnst smám saman mjög furðulegt að Samfylkingin getur ennþá starfað með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn og þá sérlega með forsætisráðherranum sem neitar ennþá harðlega að reka mann úr embætti sem hefur verið uppvís um mörg afglöp í sínu starfi.

Davíð talar um einhverjar fundi í sumar sem Ingibjörg kannast ekki við. Er ekki létt að komast að því hver segir hér ósatt. Eru ekki skrifaðir fundargerðir? Hvernig stendur á því að viðskiptaráðherra sem fer með bankamálin hefur ekki fengið að hitta seðlabankastjóra í heilt ár? Eru þetta eðlileg vinnubrögð, sérstaklega ef Davíð hefur vitað um að bankarnir myndu líklega fara á hausinn?

Réttið nú úr ykkur þarna í Samfylkingaflokknum. Slitið þið stjórnarsamstarfið ef Geir neitar ennþá að reka Davíð!


Velkominn, Davíð

Já, hann er sannur kóngur, hann Davíð, kærir sig ekki um þetta skríll sem vogar sér að gagnrýna hann. Sannur kóngur stendur himinhátt yfir slíku. Hann á landið og má ráðskast með eins og honum sýnist. Og alltaf gerir hann rétt. Hann veit allt en heldur oft sannleikann fyrir sig því pöbelinn er svo vitlaus og skilur ekkert neitt. Eins og sönnum kóng sæmir á hann auðvitað lífverði.

Nú hefur hann hótað að snúa aftur í pólitík. Hann getur nefnilega ekki horft á það að einhverjar gungur í flokknum missa stöðugt fylgi. Flokkurinn þarfnast sterkan mann, það er alveg ljóst. Við fögnum endurkomu kóngsins. Hann mun kljúfa flokkinn í herða niður.


Óþekku börnin

Í sumum fjölskyldum þar sem foreldrarnir eru mjög "uppteknir" verður litið hlustað á það sem börnin vilja tjá sig um. Reyndar fá greyin bara langþráða athyglina þegar þau eru búin að fá nóg og farin að láta illa. Hver kannast ekki við þetta?

Stór hópur fólks á höfuðborgarsvæðinu og einnig á Akureyri hefur í margar vikur reynt að fá athygli stjórnmálamanna, reynt að tjá sig, reynt að fá breytingar á óþolandi óréttlæti. Í útlöndum er verið að furða sig yfir hve friðsæl þessi mótmælin fara ennþá fram. Annarstaðar í heiminum væri fyrir löngu búið að sjóða upp úr. Reiði fólksins hér fer samt að magnast og alveg skiljanlegt að unga kynlsóðin er þar mest áberandi. Þetta er ekki skríll, þetta eru ekki "kommar". Þetta eru börnin Íslands sem ekki er hlustað á.


1. desember

Í dag er sérstakur dagur. Ísland á stórafmæli og Rás 2 meira að segja líka. Veðrið er bjart og fallegt, eins fallegt eins og það getur verið á veturna. Birtan í skammdeginu er ósköp fögur og mig langar alltaf að taka fullt af ljósmyndum við slíkar aðstæður.

Eftir hádegi verður stór mótmælafundur í miðbænum, margir hugsa um að leggja niður vinnuna og mæta. Ég kemst því miður ekki. Mér er treyst fyrir hópi barna í frístundastarfi og það er ekki eins einfalt að segja: "Nú sjáið þið bara um ykkur sjálf, ég er farin." Svona gerir maður ekki með ung börn.

Ég sendi öllum sem mæta á fundinn baráttukveðjur og vona að ekkert fer úr böndum þrátt fyrir réttláta reiði fólksins.


Bláa lónið

Í gær fór ég með útlenskan gest í Bláa Lónið. Mér blöskraði verðið: 2800 kr. fyrir eina baðferð. Þetta mynda fara upp í 11.000 kr. fyrir fjölskyldu með 2 stálpuð börn. Ég varð ekki heldur vör við að íslenskt fólk var þarna að baða sig. En útlenskir gestir  sækja þennan stað í stórum hópum enda er lónið orðið heimsfrægt. Ekki er verra að fara þangað í norðanrok og skítakulda eins og var í gær. Það var öldugangur í lóninu eins og í sjónum, flott þetta! En það hefði mátt hleypa meira heitt vatn í, lónið var frekar kalt nema á mjög afmörkuðu svæði þar sem allir baðgestir kúrðu.

Gætum við ekki markaðssett okkur betur sem land með frábærar heilsulindir sem má sækja heim á öllum tímum ársins? Skipuleggja bað- og sundferðir með ævitýra- ívafa (t.d. Nauthólsvík og sjósund, gönguferð í Reykjadalinn með bað í heita læknum, miðnætursund með norðurljós)? Mér dettur þetta bara svona í hug af því að ég trúi því að við gætum eflt ferðamennskuna talsvert.


Hættum ekki að mótmæla

Hættum ekki að mótmæla á meðan:

1. Eign auðmanna verður ekki frystur og þeir eru látnir borga tilbaka allt sem þeir geta borgað.

2. Seðlabankastjórn ásamt forsætis,- fjármála-, viðskipta- og dómsmálaráðherra segja ekki af sér.

3. Verðtryggingin á lánum verður ekki afnumin eða þá verðtrygging launa kemur á móti.

4. Allt sukk og svínarí í kringum bankahrunið verður ekki rannsakað til fulls af óháðum aðilum.

5. Ný ríkisstjórn verður ekki kosið á nýja árinu.

 


Jóla- jóla

Ekki er hægt að segja að ég sé mikið jólabarn. Jú, jólahátíðin er skemmtileg og ég hlakka til jóla. Ég skreyti líka húsið greinum grænum og ljósum, ég býr til jólakort og sendi þau til allra sem mér þykir vænt um. Ég baka smákökur og leyfi öðrum að smakka smá. Kannski hef ég afgangs til að gefa til góðgerðamála, vonandi.

En aðventan er í mínum huga rólegur tíma án æsingar. Ég vil helst ekki þurfa að fara í jólaglögg eða hlaðborð. Ég vil ekki þurfa að hlusta á endalaust auglýsingarglamur (hafið þið tekið eftir hvað orðin "ódýrt" og "afsláttur" heyrist oft?). Jólalögin mega vera svona í hófi svo maður er ekki orðinn leiður á þeim þann 24. des.

Þar sem mín fjölskyldan hefur fyrir löngu ákveðið að við gefum ekki jólagjafir heldur frekur okkur sjálf og tíminn okkar á hátíðinni  þá mun kreppan ekki breyta neinu hjá okkur um jólin. Skyldi hófsemin og rósemdin verða meira um þessu jól? Eða ráða græðgin og neyslubrjálæði enn ríkjum?


Halló, Björn Bjarnason

Björn, þú ætti að skammast þinn! Þú situr í þínum glerturn og tekur ekki mark á neinu sem er þér ekki að skapi. Af hverju þorði  þú ekki að mæta á borgarafundinn í gær? Það er ekki endalaust hægt að fela sig fyrir óþægilegum spurningum. Og hvað átti það að þýða að ásaka hann Steingrím J. í gær á þingi um að hafa tafið rannsóknir? Ekki var skrítið að hann reiddist. Ég er mjög reið fyrir hans hönd. Þetta var algjörlega út í  hött. Þú ætti að hugsa þinn gang sem dómsmálaráðherra, ég meina það!

Kárahnjúkarvirkjun og veislan

Síðustu vikurnar er ég mikið búin að hugsa. Ég hugsaði eins og margir Íslendingar: "Hvernig gat þetta gerst?" Hvernig gátu bankarnir bólgnað svona út án þess að aðvörunarbjöllurnar hringdu hátt dag og nótt?

Okkar var sagt að nú væri góðæri á landinu. Okkar var sagt að nú væri stór veisla í gangi hjá þjóðinni. Með  stóru virkjunarframkvæmdunum fyrir austan átti að bjarga öllum vandamálum á "no time". Þjóðin í óraunhæfu  bjartsýniskasti trúði því að það væri hægt að taka endalaust lán án þess að borga tilbaka. Fjármálasnillingar spruttu upp sem gátu allt og allir dáðust að. Enginn vildi vita af því að eftir mikla þensla kæmi eðlilega samdráttur. Talað var um tíma um "mjúka lendingu". En hver lendir mjúkt þegar hann stekkur úr tíunda hæð? Svo óheppilega vildi til að þegar við stukkum úr tíunda hæð þá lentum við ekki bara á götunni heldur í djúpri gjá sem hafði myndast út af fjármálaheimskreppu. Við hefðum sloppið betur ef við höfðum bara lent í gjánni, ekki satt?

Mér þætti fróðlegt að vita hversu mikil áhrif Kárahnjúkaframkvæmdirnar höfðu í raun og veru á efnahagsástandið í dag. En um þetta má greinilega ekki tala. Það myndi spilla fyrri næstu glappaskot sem eru í uppsiglingu: Það á að virkja meira, það á að dempa sig í meira skuldir, það á að gera Ísland háð alfyrirtækjunum í ennþá ríkara mæli. Skelfileg framtíðarsýn!

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sat Borgarafundinn í gær í Háskólabíói.  Þökk sé henni fyrir að segja þessa kjarngóðu athugasemd að við Íslendingar þyrftu ekki erlenda aðila til að rústa okkar auðlindir - okkur hefði tekið þetta sjálf.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband