11.10.2010 | 16:21
Hvað á Bjarni Ben. við?
![]() |
Fráleit umræða um samráðsfund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.10.2010 | 15:47
Útsala á auðlindunum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2010 | 15:05
Samvinna hvað?
Sjálfstæðisflokkurinn mætti ekki á fund ríkisstjórnar, varaformaðurinn þóttist ekki vera búin að fá boð. Á þeim bæ eru samt fullyrðingar uppi um það að þeir vilja samstarf en ekki hinir. Samvinna hvað?
Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki heldur átta sig á því að mótmælin beinist ekki einungis gegn núverandi ríkisstjórn heldur gegn vinnubrögð á alþingi í heild þar sem þeirra menn sitja og tefja fyrir málunum til að knýja fram kosningar. Ekki hefur heyrst margt bitastætt og uppbyggilegt frá þessum flokki sem átti stóran þátt í hruninu. Það er bara gagnslaust nöldur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2010 | 17:03
Ólöf Nordal kom til að hlusta
Flott hjá þeim í sjálfstæðisflokknum: Að koma á fund forsætisráðherra til að hlusta. Ólöf Nordal sem var með þessa "uppbyggilegu yfirlýsingu" hafði reyndar fátt uppbyggilegt að segja í sínu framlagi á fundinum í gær. Engar tillögur, ekkert sem hjálpar áfram. Bara rakka allt niður til að fá nýjar kosningar. Nýjar kosningar til að stoppa af rannsóknir um hvað olli og hverjir voru flæktir í hrunið. Greinilegt að með þessum skotgrafarhernaði vilja menn bjarga sitt eigið skinn.
Sigmundur Davíð svaraði einnig út og suður og ekkert bitastætt var að heyra frá hans flokki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.10.2010 | 22:42
Mótmælið þið á réttum stað!
![]() |
Bankarnir hafa dregið lappirnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.10.2010 | 12:27
Að höfða skaðabótamál?
![]() |
Skoða áfram skaðabótamál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.10.2010 | 13:51
Var fólkið að mótmæla á réttum stað?
Ég er að velta fyrir mér hverju fólkið var að mótmæla í gær á Austurvelli? Flestir voru sennilega mættir vegna þess að þeir eru óánægðir með ástandinu á Íslandi. En margir virðast vera með gullfiskaminni og muna ekki hverjir það voru sem ollu þessu. þar má t.d. nefna Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson sem forsvarsmenn fyrir Sjálfsstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn í þar fyrirverandi Ríkisstjórn. Og svo auðvitað Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún í síðasta ríkisstjórn sem skipstjórar á síðasta skipinu. Það voru margir sem brugðust þjóðinni annaðhvort af ásettu ráði og valdagræðgi eða út af andvaraleysi.
Margir sem mótmæltu í gær tóku sjálfir þátt í hrunadansinum, tóku illa ígrunduð lán í neyslubrjálæði sem reið yfir þjóðfélagið í "góðærinu" og trúðu öllu sem þeim var lofað bæði af stjórnvöldum og fjármálafyrirtækjum.
Mótmælin ættu sérlega að fara fram hjá aðalstöðvum bankana. Þarna er að sölsa undir sig eignir fólksins og litilla fyrirtækja til að selja svo einkavinum á lágu verði. Þarna heldur spillingin áfram, þarna þiggja topparnir ennþá ofurlaun.
Ef það eru ekki lög til í landinu sem koma í veg fyrir svona eignanám þá þarf hin snarasta að búa þau til. Bankakerfið má ekki vera eins konar ríki í ríkinu þar sem menn gera það sem þeim sýnist. Þá nefnilega mun sagan endurtaka sig, alveg bókandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.9.2010 | 16:54
Sjálfstæðismenn og lýðræði
![]() |
Gátum ekki setið undir þessu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.9.2010 | 18:13
Geir Haarde er heppinn
Geir Haarde er heppinn að geta þvegið af sér sökina um hrunið fyrir landsdómnum. Hinir eru ekki jafn heppnir, þeim mun alltaf fylgja óbragð sem þjóðin fær í munninn við að heyra þeirra nöfn.
Getur það virkilega verið að Björgvin S. tekur aftur sæti sitt á Alþinginu? Ég trúi ekki að maðurinn er til í slíkt eftir því sem hefur gengið yfir þjóðina þegar hann gegndi ráðherraembætti!
En nú biðum við spennt eftir því að tekið verður í hnakkadrambinu á seðlabankastjórunum og bankastjórunum sem voru við störf fyrir hrunið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2010 | 08:36
Flottar sýningar á Listasafn Íslands
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)