15.4.2009 | 15:11
Draumalandið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2009 | 17:12
Aftur á landi
Ég tók mér viku frí til að skreppa á gamla heimaslóðir í Rínardalnum. Veðrið var ótrúlega gott, yfir 20 stiga hiti og sól allan tíma. Maður sá bókstaflega hvernig blómin opnuðust og skógar grænkuðu. Kirsjuberjatrén í blóma lituðu stór svæði hvít, þar á milli bleik blóm af möndlutrjám og gul blómstrandi akrar af raps- plöntum. Öll þessi fegurð var svo sjálfsögð á meðan maður bjó þarna, en núna þegar komið er í heimsókn úr vetrarríki Íslands finnst manni þetta paradís á jörðu. Er ekki merkilegt að maður kann að meta það sérstaklega sem er ekki alltaf til staðar? Ég hef aldrei fengið heimþrá til Þýskalands en núna langaði mig bara alls ekki heim til Íslands.
Í dag er ég aftur sátt. Fyrstu vorverkin í garðinum kölluðu, ég er búin að fá mér sopa af okkar frábæru vatni og skál af rækjum. Í kvöld mun ég elda fyrsta flokks fiskimáltíð. Og áðan þegar ég var úti í garðinum heyrði ég bæði í hrossagauk og stelk. Vorið er alveg að koma til okkar líka, bara aðeins öðruvísi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2009 | 11:26
Gagnrýnið ekki sanngjarnt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.4.2009 | 14:47
Vesalings krónan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2009 | 10:58
Jesús minn, Davíð!
Davíð Oddsson hefur greinilega ekki lesið Nýja Testamentið nógu vel. Jesús var krossfestur fyrir það að hann passaði ekki nógu vel inn í kramið hjá valdhöfunum, predikaði um kærleik, fyrirgefningu og nægjusemi. Fræg er það atriði þegar hann rak peningaöflin úr helgidómnum föður sins. Með Jesús voru krossfestir 2 sakamenn.
Davíð Oddsson hefur í sinni valdatíð einmitt stutt peningaöflin í þjóðfélaginu, hefur leyft þeim að stækka um of með frjálshyggjustefnunni. Auðmýkt, kærleikur og iðrun er vandfundið í fari þess manns. Ekki veit ég til þess að bankastjórnendur sem voru "krossfestir" með Davíð eru sakamenn. En málið snýst auðvitað um það að menn í þeirra stöðu þurfa að víkja eftir slíkum hamförum sem gengu yfir þjóðina.
Að Davíð líkir sig saman við Jesús sýnir glögglega að hann gengur ekki heill til skógar. En miklu alvarlegra var hversu vel var klappað fyrir slíku bulli á landsfundinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.3.2009 | 14:11
Skrítinn dómur
Móðir sem á barn í Mýrahúsaskóla var nýlega dæmt til að greiða skaðabætur. Dóttir hennar sem er með aspherger- heilkenni slasaði kennarann sinn það alvarlega að hann beið heilsutjóni.
Þegar ákveðið var á sínum tíma að öll börnin eiga rétt að sækja nám í venjulegum grunnskóla þá hljóta yfirvöldin að hafa gert sér grein fyrir að börn með sérþarfir kalla á meira mannskap og þá sérmenntaða starfskrafta til að sinna þeim. Nú veit ég ekki hvernig málin standa í nefndum skóla en ég veit að víðar er potturinn brotinn og álag á kennarana hefur aukast þegar sérstök börn bætast í hópinn.
Er rétt að dæma móðir að greiða margar milljónir í skaðabætur þegar hún þiggur tilboð um að senda barnið sitt í venjulegan grunnskóla sem hún á rétt á? Og eru kennarar ekki tryggðir í starfi sínu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.3.2009 | 11:35
Allir á fjórhjól!
Er þetta virkilega satt að það verið er að selja fjórhjól fyrir smákrakka alveg niður í leikskólaaldur? Þyrfti nú ekki að grípa inn í þetta og setja einhverjar reglur um innflutning slíkra tækja? Notkun vélknúna ökutækja er ekki löglegt á barnsaldri nema á afmörkuðum æfingarsvæðum. Hvað gerist svo? Elsku litla barnið á þetta flotta tryllitæki heima hjá sér og pabbi eða mamma hafa sjaldnast tíma að aka það á torfærusvæðið. Þá fer krílið að stelast og brunar um á gangstígunum eða út í móa, spólar, spænir og skemmir. Og það sem enn er verra: það setur sig og aðra í hættu. Svona tæki eru ekki skráð og ekki tryggð. Ég sé svona ólöglegan torfæruakstur oft hér í bænum. Lögreglan er sjaldnast á staðnum og ef þá stingur gengið bara af.
Hér þarf að grípa inn sem fyrst og stoppa innflutning og sölu slíkra leikfanga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2009 | 14:47
Eru allir svona?
það er ljótt að alhæfa um fólk. En það heyrist mjög oft setningar sem byrja á þann hátt: "Allir Bandaríkjamenn eru..." eða "Allar konur eru..."
Eru allir Íslendingar fjárglæframenn þegar nokkrir tugir manna hafa sett þjóðina á hausinn með græðgi og glannaskap?
Eru allir vélhjólamenn umhverfisníðingar þegar nokkrir ruddar spæna upp viðkvæmt land?
Eru allir hestamenn dýraníðingar þegar sumir hugsa ekki um hestana sína á veturna?
Eru allir landsmenn sóðar þegar sumir tæma úr öskubökkunum á gangstéttir, henda ruslið út um bílaglugga og eru ennþá með leifar af áramótaflugeldum fyrir framan húsin?
Eru allir Íslendingar trúgjarnir og gleymnir þegar kosningarloforðin fara á loft núna? Kjósa eins og þeir hafa alltaf gert og muna ekki eftir neinu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.3.2009 | 15:52
Heilbrigð endurnýjun
Gaman var að fylgjast með íslenska handboltalandsliðinu. Í síðustu 2 leikjum vantaði fullt af "gömlum" kempum með mikla leikreynslu. Margir spáðu strákunum okkar ekki of góðs gengis. En viti menn: Þarna komu inn ungir efnilegir strákar sem voru ferskir og þorðu að gera hlutina. Og þetta small alveg ótrúlega vel saman. Guðmundur þjálfari er snillingur að setja þetta svona upp og hafa þessa unga menn meira en tilbúna í erfið verkefni.
Menn vildi stundum óska þess að það yrði meiri endurnýjun í pólitíkinni. Sérstaklega í Sjálfstæðisflokknum er ekki margt nýtt í boði. Hvað kemur til að menn skyldu kjósa að mestu leyti aftur þetta sama gengi í prófkjöri sem stóð sig engan vegin í ríkisstjórn? Þorgerður Katrín, Guðlaugur Þór, Einar K., Bjarni Ben., við tölum nú ekki um Árna Jónsen! Er hægt að kjósa þennan flokk? Að vísu fagnar maður að sjá Ragnheiður Ríkarðsdóttur svona framanlega á listanum enda kom hún með smá ferskan vind inn á þing og jafnvel þorði að gagnrýna eiginn flokk. Þetta tiðkast annað ekki á þeim bæ.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2009 | 16:54
Vorjafndægur og ruslið
Í dag eru nótt og dagur jafn löng. Næsta hálfa árið erum við sólarmegin. Samt er sumarið ekki komið fyrr en krían lætur sjá sig, hún veit hvenær er óhætt að koma hingað. Þegar er virkilega hægt að kalla það sumar hér þá er bara mánuður þangað til sólin lækkar aftur á loftið.
Ég er vetrarbarn og elska snjóinn, vil helst hafa hann fram í maí. Svo sleikir sólin hann burt og við tekur grænn gróður. Þetta væri æðislegt. Þá þyrfti maður ekki horfa jafn lengi á óþrifnaðinn sem kemur undan snjónum. Árstíminn núna finnst mér lang ljótastur. Rusl út um allt, ennþá leifar af áramótaflugeldum, hundakúkur í plastpokum, fullt af drasli sem fólk hefur ekki nennt að hirða. Verst er það í kringum sjoppurnar. Væri ekki mál að krefjast þess að þeir sem reka slíkt fyrirtæki tæku til í kringum sig?
Erum við hér á landi virkilega svona miklir sóðar að okkur finnst allt í lagi að hafa allt í rusli og drasli þangað til vinnuskólarnir taka til handa og hreinsa til? Ef vil ætlum að markaðasetja okkur sem hreint og fallegt land hjá erlendum ferðamönnum þá gengur þetta auðvitað ekki. Það er fullt af erlendum ferðamönnum sem leggja leið sitt hingað allan ársins hring. Þeir sjá að Íslendingar eru kærulausir í umhverfismálunum. Glöggt er gests augað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)