20.3.2009 | 14:01
Gott hjá Ögmundi
Ég ætla að þakka Ögmundi fyrir að afnema dagdeildargjöldin aftur sem Guðlaugur Þór lagði á þann hóp í þjóðfélaginu sem síst á efni á auknum útgjöldum. Vonandi verður Ögmundur sem lengst í embætti heilbrigðisráðherrans. Ríkið getur sparað á öðrum sviðum heldur en á sjúku fólki. Sem dæmi má nefna varnarmálin, þar má strika hressilega út. Svo mætti leggja skatt á notkun nagladekkja sem valda gríðarlegum kostnaði í gatnaviðgerðum á hverju ári. Minnkun svifryks myndi auk þess skila sér í betra heilsu þeirra sem eru viðkvæm fyrir þennan óþvera.
![]() |
Ögmundur afnemur dagdeildargjöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2009 | 14:39
Að setja úr einum vasa í annan
Jú, það hljómar vel: Fella niður 20% af skuldunum. Framsóknarflokkurinn ætlar aldeilis að afla sér vinsældar svona rétt fyrir kosninganna. En hver mun borga það sem tapast á þessum niðurfellingunum? Auðvitað við skattgreiðendur. Er réttlátt að þeir sem lifðu alltaf hofsömu lífi og skulda lítið eða ekkert eru látnir borga? Er réttlátt að einstaklingar og fyrirtæki sem skulda mikið fá mestan afslátt? Þetta er ekki svona einfalt. Það þarf að meta öll tilfellin sér ef þessi leið yrði farin. Illa rekin og of skuldsett fyrirtæki eiga auðvitað að fá leyfi að lognast út af, það er ekki vit í öðru.
Við skulum flýta okkur hægt í að hrópa húrra fyrir einhverjum auðveldum töfralausnum. Reynslan segir okkur að svona gengur sjaldnast upp.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.3.2009 | 14:50
Gott fyrir sálina
Skemmtilegt var að lesa fréttina um að sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum fór í heimsókn á elliheimili og leyfði öldruðum að komast í snertingu við hundinn sinn. Bæði ungt og gamalt hefur gott af því að umgangast dýr. Þetta er mannbætandi og gott fyrir sálina.
Það hefur uppeldislegt gildi fyrir börn að eignast dýr og þurfa að sinna því. Dýr eru nefnilega ekki leikföng heldur vinir og félagar.
![]() |
Loðinn og ferfættur sjálfboðaliði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2009 | 15:02
Grensásdeildin
Fyrir rúmu ári kynntist ég Grensásdeildinni og því frábæra starf sem fer þar fram. Ég var nýkomin úr liðskiptaaðgerð á hné, mér var "hent út" úr spítala eftir aðeins 3 daga. Svo fékk ég að vera á Grensás í 5 daga í viðbót til endurhæfingar. Mjög stuttur en mjög mikilvægur tími fyrir áframhaldandi bata. Þar kynntist ég fólki með mjög alvarlega fötlun, oft eftir slysi.
Er virkilega satt að það stendur til að fækka leguplássum á Grensásdeildinni um helming? Hvert á fólkið að fara sem þarf á þessum plássum að halda? Ekki fer þeim allt í einu að fækka um helming eða hvað?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.3.2009 | 09:37
Þvílíkur viðbjóður!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.3.2009 | 15:09
Bravó , nýja ríkisstjórn!
Það á nú enginn að segja að það sé ekki eitthvað að mjakast í rétta áttina. Eftirlauna- ósóminn var loksins leiðrétt. Það sem ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks vildi aldrei breyta það heppnaðist núna, loksins.
Nýja ríkisstjórnin tók við mjög erfiðu búi og þarf auk þess að glíma við íhaldsmenn sem eru í fýlu og á móti öllu og við Framsókn sem vill alltaf eiga síðasta orðið. Samt tókst að koma frumvörp í gegn sem eru mikilvæg fyrir endurreisnina hér á landi. Frábært!
![]() |
Eftirlaunafrumvarp samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.3.2009 | 16:15
Með jákvæðni að leiðarljósi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2009 | 14:46
Er vorið á leiðinni?
Alltaf sama bjartsýni! Nú fer fólkið að spyrja hvort vorið sé í nánd. Og það er bara febrúar! Að minnst kosti 2 mánuðir af vetri eru eftir. Spyrjið þið birkið, það veit hvenær það á að springa út.
En krummarnir eru byrjaðir að krunka sér saman og fýlarnir farnir að máta gömul varpstæði. Og í morgun var í fyrsta skipti farið að birta þegar ég fór í vinnunni. Svo það er allt á réttri leið. Fyrir utan þetta voru Davíð og Eiríkur að kveðja loksins í Seðlabankanum. Kannski er vorið virkilega að koma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.2.2009 | 09:45
Hvað fékk Höskuldur fyrir þetta?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.2.2009 | 11:21
Ekki hætta núna!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)