Smábrauð en ekki risakökur

Kreppan er ekki slæm með öllu. Ég tel það vera góðar fréttir að okkur gefst kost á að stíga út úr þessum ál - vitahring. Það er auðvitað sárt eins og stendur að það verður ekkert af þessum stórframkvæmdum í Helguvík sem áttu að skaffa fjölda manns atvinnu og kemur það á versta tíma. En til lengra litið er okkur hollt að nota orkuna okkar í önnur  og arðbærara starfsemi en álbræðslur, dreifa eggin í fleiri körfur, trúa ekki á töfralausnir í samband við örfá risafyrirtæki. Við skulum einbeita okkur á því að baka smábrauð en ekki risakökur. Við nærumst nefnilega ágætlega á því.
mbl.is Álver í Helguvík í óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gat Steingrímur gert betur?

Ég er algjörlega á móti hvalveiðum og hef áður skrifað um það. Hvalveiðar spilla fyrir okkur í útlöndum, muna mjög líklega hafa slæm áhrif á sölu afurða okkar til útlanda og einnig á ferðaþjónustuna. Eins og staðan okkar Íslendinga er í dag höfum við ekki efni á því að sýna umheiminum ljóta puttann og þykjast geta gert allt sem okkur sýnist.

En ákvörðun Steingríms J. um hvalveiðar er sennilega það besta sem hann gat gert núna. það er ekki sanngjarnt að ásaka hann fyrir að svíkja lit. VG situr í minnihlutastjórn og meirihluti á alþingi er fylgjandi hvalveiðum. Stærri partur þjóðarinnar er það líka. En reglurnar um vernduð svæði þar sem má ekki veiða hvali og um endurskoðun hvalveiðaleyfa munu gera gagn. Strax á næsta árinu mun auk þess fara fram endurmat á hvalveiðimálunum.

Eftir stendur siðlausa ákvörðun að Einars K. sem hafði þann tilgang að leggja steina í götu á næsta sjávarútvegsráðherra og tefja fyrir mikilvægustu málunum sem núverandi ríkisstjórn þarf að glíma við.


Að verja strákana sína

Katrín Júlíusdóttir hefði ekki getað orðað það betur: Að sjálfstæðismönnunum er efst í huga að verja strákana sína. Hvað er að mönnunum eins og Sigurður Kári og Birkir Ármannsson að vera í kapphlaup upp í pontu á Alþingi og gera ekkert annað en að tefja fyrir afgreiðslu mikilvægra mála? Þessir menn eru komnir í bullandi kosningarbaráttu og hugsa frekar um sinn eigin hag en hag þjóðarinnar.
mbl.is Hart deilt á stjórnarandstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskar Bergsson og siðferði

Óskar Bergsson bauð 25 framsóknarmönnum á kostnað Reykjavíkurborgar. Sagði hann í Kastljósinu í kvöld að það hefði verið dæmi upp á 90.000 kr. Miðað við allar milljarðar sem eru í umræðum núna  finnst manninum  þetta kannski ekki neitt til að tala um. En málið snýst fyrst og fremst um siðferði. Á maðurinn rétt á því að boða flokksbræðrum á kostnað borgarbúa? Hvar eru mörkin? Borgarbúar eiga ekki að þurfa að standa kostnað fyrir einhverjar móttökur á vegum flokksins. Það er svona einfalt. Þetta kallast spilling þó ekki um mjög stórar upphæðir er að ræða. Í öðrum löndum er krafist afsagnar fyrir slíkt. Mjög neyðarlegt fannst mér útúrsnúningar Óskars í viðtali í Kastljósinu. Vildi hann meina að VG hefði einhvertíma fyrir nokkrum árum staðið að svipaðri móttöku. Svona lagað minnir mig á skólakrakka sem afsaka gjörðir sínar með því að "hinir gerðu þetta líka".

Er Davíð ofsóttur?

Hvernig er þetta með hann Davíð? Er hann að bíða eftir því að þjóðin meðaumkast yfir hann. Af því hann er ofsóttur af mótmælandi skrílnum? Þegar maður heyrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins tala þá ætti maður að halda að í Seðlabankanum sæti píslavottur. Frumvarpið um breytingar í Seðlabankanum snúast nú aðallega um það að endurvekja traustið til þeirri stofnun. Það gerist ekki öðruvísi en Davíð víkur. Hefði seðlabankastjóri verið ópólitískur þá hefði hann líka þurft að segja af sér eftir öllu því sem hefur gengið á hér í fjármálageiranum.

Um hvalveiðar og frelsi

Kannski eru hvalveiðar ekki aðalmálið núna, annað er meira aðkallandi. En fyrir fáeinum dögum mættu sendiherrar á fund sjávarráðherra Steingrímur J. og hörmuðu ákvörðun þáverandi sjávarráðherra Einar G. að auka hvalveiðikvótann sem hann tók á síðasta degi sinar ráðherratíð. Sendiherrar þessir voru flestir frá okkar helstu viðskiptalöndum.

Nú spyr ég: Höfum við efni á því að hunsa þessar athugasemdir? Eins og okkar staðan er í dag, skuldugir upp fyrir haus og rúin trausti, eigum við efni á því að sýna heiminum puttann og þykjast geta gert allt sem okkur dettur í hug? Njóta auðlindir? Skapa atvinnu? Bull! Við stórsköðum ímyndina okkar sem er ekki of góð fyrir. Við stórskemmum fyrir ferðaþjónustuna sem hefur verið sú atvinnugrein sem hefur vaxið og dafnað hvað mest og skapar fullt af störfum.

Við verðum að hlusta á umheiminn, hefðum þurft að gera þetta fyrir löngu. Við erum ekki frjáls þjóð, allavega ekki lengur.


Geir í HARDtalk

Ég var einfaldlega kjaftstopp þegar ég fylgdist með viðtal Geirs Haarde í BBC. Það var bara einn góður punktur í þessu og það var spyrillinn. Hann var vel undirbúinn og hnífbeittur í sínum spurningunum og afhjúpaði heldur betur hversu illa Geir hefur staðið sig.

Geir hafði einfaldlega engin svör. Hann fór bara með frasa og ekki- svörum. Verst var þó að hann fór einnig með ósannindi, t.d. að íslenskir sparifjáreigendur hefðu ekki tapað neinu. Ef ég skoða bara minn fjárhag eftir bankahruninu þá gæti ég gubbað að fá svona framan í mig.

Svo skundar þessi maður núna ótt og títt í pontu á Alþingi og er með eitthvað þras sem tefur bara afgreiðslu mikilvægra mála. Hann ætti að sitja í aftasta horni og halda sig saman, allavega þangað til hann hefur beðið þjóðina afsökunar fyrir öll sín afglöp.


Að míga í alla brunna

Steingrímur J. er mjög orðheppinn maður. Á sínum tíma spurði hann hvort Davíð sé "gunga og drusla" því hann þorði ekki að eiga málstað við hann. Dæmi nú hver sem er hvort Davíð sé gunga og drusla, maður sem er í felum og þorir ekki í viðtal.

Í dag æsti Steingrímur sig svolítið hressilega þegar hann gagnrýndi Sjálfstæðisflokkinn. Núna þegar þessi flokkur er í stjórnaandstöðu þá "mígur hann í alla brunna og kveikir í öllu heyi sem hann finnur". Betra var varla hægt að lýsa það sem gerist núna á Alþingi. Menn í Sjálfstæðisflokknum eru í því að tefja mikilvæg mál með nöldur og athugarsemdum sem ekki máli skiptir. Hver spyr um hvaða flokk átti hugmynd af einhverju sem þarf að gera? Þarf að karpa núna um hvort álver verður eða ei? Þetta liggur ekki í okkur höndum heldur er mál þeirra álfyrirtækja sem eru núna að glíma við alvarlegt vandamál. Þarf að ræða hvalveiðar núna? Einar K.Guðfinnsson meig svo sannarlega í næsta brunn þegar hann framleiddi þessa sprengju á síðasta degi í sínu ráðherratíð. Skömm fyrir þetta!

Þjóðin er í neyð, margir atvinnulausir, skuldugir upp fyrir haus. Allt viðskiptalíf er í lamasessi og hver dagur skiptir máli. Geir Haarde sem fannst best að gera ekkert neitt frá því að bankarnir hrundu ætti að passa orða sinna núna sem þingmaður. Hugsa þér að hann ræddi ekki einu sinni við Gordon Brown þegar mesta þörf var á! "Ég hefði kannski átt að gera það" heyrðist  hann segja í viðtali í dag. En hann kann ekki ennþá að biðjast afsökunar.


Norðurál er líka að draga saman

Álfyrirtækin eru að draga saman seglin enda minnkandi eftirspurn eftir ál á heimsmarkaði. Álverðið hríðfellur. Eigum við hér á Íslandi virkilega að dreyma áfram stóriðjudrauminn? Sem fyrr sem við vöknum sem betur. þótt við erum að berjast við atvinnuleysi núna þá er ekki sniðugt að ausa fullt af fé í einhver starfsemi sem er bara til nokkra ára og myndi skilja okkur eftir í ennþá dýpri holu. Mér skilst að Alcoa hefur ekki lengur áhuga á álverinu fyrir norðan nema með einhverjum ofurkjörum sem Íslendingar geta alls ekki sætt sig við.

Á hverju ekki að láta lítil  fyrirtæki fá orkuna á betri kjörum og létta þeim rjóðrið? T. d. matvinnslufyrirtæki, bændur eða garðyrkjustöðvar? Það mætti fókusa á heilsutengd ferðaþjónustu, á ævintýraferðir að vetri til o.fl. Það mætti nota hráefnið betur en hingað til, t.d. búa til gæludýrafóður. Lítil fyrirtæki borga sig margfalt miðað við stór álver og skapa fullt af störfum. Svo verður ekki heilt byggðarlag háð einu stóru erlendu fyrirtæki. Nú heyrist raddir sem viðurkenna að álverið á Reyðarfirði hefur alls ekki haft þau jákvæð áhrif eins og vonast var.


Tjáningarfrelsi?

Ja hérna! Það má greinilega mótmæla, en ekki hjá Seðlabankanum. Nú er Dabbi grey að fara á taugunum, fær ekki að drekka kaffið sitt í friði. Hver gaf út þessar skipun til lögreglunnar að stoppa hávaðann? Sturla er búinn að þeyta lúðurinn sinn í mörgum mótmælum en nú allt í einu má hann það ekki lengur af því að það snertir kónginn sjálfan.

Ég er að velta fyrir mér hvað það er sem kemur mönnunum til að vernda Davíð í rauðan dauðan. Eru menn hræddir að hann leysi frá skjóðunni og kjafta frá einhverju sem má ekki lita dagsins ljós? Það er jú vitað að maðurinn er með eindæmum hefnigjarn.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband