Flóttamaðurinn hann Davíð

Eiginlega ætlaði ég að hætta að blogga um Davíð, er sjálf orðin hundleið á þessu. En það sem maður sá í fréttunum í gær er bara með ólíkindum! Davíð á flótta: Þorir ekki inn í Seðlabankann (eða var hann falinn í sendiferðabílnum?). Davíð á flótta undan blaðamönnunum: Segist þurfa í læknisskoðun á Landspítala, læðist svo út hinum megin þar sem einkabílstjórinn hans bíður. Í dag vaknar manngreyið eldsnemma og læðist inn á sinn vinnustað til að vera á undan mótmælendunum.

Skelfilega virðist maðurinn vera með slæma samvisku að láta svona. Hugsa ykkur: Maður í hans stöðu í vinnu hjá þjóðinni gefur ekki kost á sér í viðtal, læðist bara með veggjunum, svara engu. Skítsama hvort þjóðfélagið brennur, hugsa bara um sinn eigin hag.

Nú skulum við bara panta lyklasmið og skipta um lása í Seðlabankanum. Sorry, Davíð, þín viðvera er ekki lengur óskað hér.


Hvað er betri?

Er betri að vera í jakkafötum og með skjalatösku í einkaþotu á leiðinni í skattaskjól heldur en nakinn á reiðhjól?


mbl.is Berrassaðir á reiðhjóli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólgleraugun hans Davíðs

Nú er tíminn kominn að Davíð tekur niður sólgleraugun sín og horfir á veruleikann. Stór partur þjóðarinnar vill hann burt úr Seðlabankanum. Meirihluti á Alþingi er sammála að það verður að gera skipulagsbreytingar í Seðlabankanum til að byggja upp traust á ný til peningastofnanna. Jafnvel hörðustu íhaldsmenn átta sig á því að áframseta Davíðs sem bankastjóri er skaðlegt þjóðinni og uppbyggingu á Íslandi eftir bankahrunið.

En Davíð hugsa ekki um hagsmunar íslenskra þjóðarinnar. Maðurinn er eitt stórt egó, finnst að það sé að hóta honum og ofsækja hann. Sorglegt að dýrmætur tími á Alþingi fer í það að ræða hvernig best er að koma honum burt.


mbl.is Fækkar við Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjartan Gunnarsson og ofsóknir

Kjartan Gunnarsson er mikilmenni. Hann fer örugglega beint í himnaríkið fyrri það að fyrirgefa þegar vegið var að honum: það er ekki langt síðan Davíð vinur hans kallaði hann "óreiðumaður". En Kjartan fyrirgefur honum ekki bara heldur ver hann vin sinn í hjartnæmu grein í Morgunblaðinu í dag. Það eru ekki bara vinstri flokkarnir heldur einnig stórpartur íslenskra þjóðarinnar sem ofsækja Davíð (ennþá) seðlabankastjóra. Hugsið ykkur: Davíð sem hefur alltaf varið við hættuna en enginn hefur hlustað á hann. Svo á hann núna að sætta sig við að flugfreyja rekur hann!

En Kjartan gleymir því að "flugfreyjan" hefur setið áratugi á Alþingi og hefur sennilega meira reynslu en flestir og einnig dágóða þekkingu í sínu starfi. Og  Kjartan áttir sig sennilega á að Davíð hefur tekið ákvarðarnir í sínu embætti sem urðu íslensku þjóðinni mjög dýrar. Setningin "we will not pay" var ein kostnaðarsamasta setningin sem nokkur maður hefur sagt. Davíð ætti að sjá sóma sinn í því að taka pokann sinn sjálfur.

En Kjartan er tryggur vini sínum. Skildi hann hafa grædd vel á þessu?


Loksins farið að spara á réttum stað

Flott að menn séu loksins að spara á réttum stað. Þetta herbrölt er algjör óþarfi og við ættum að vera fljótir að leggja þetta niður.  Vonandi stendur Össur við orðin sín, hann er búin að vera hálfgerður vindhani og búinn að snúa sér í hring með sumum yfirlýsingum, t. d. í sambandi við virkjunarmálin.
mbl.is Málefni Varnarmálastofnunar til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hve lengi ætla menn að berja hausinn við stein?

Loksins ratar upplýsingar í fjölmiðlana sem maður hefur beðið lengi eftir: Hve mikið fær íslenska þjóðin út úr stóriðjunni? Indriði H. Þorláksson kemur með útreikningar sem sýna glöggt að það er sáralitill hagnaður sem verður eftir hér á landi. Fyrir þennan lítinn hagnað eyðileggjum við náttúruperlur, aukum mengun og tökum stór lán á okkur til þess að búa til umdeildar virkjanir. Við seljum okkar auðlindir fyrir slikk út úr landi og sitjum upp með vandamálin.

Menn ættu nú loksins að viðurkenna að tíminn stóriðjunnar er að liða undir lok og aðrir arðbærara atvinnuvegir taka við. Hvað til dæmis um að fullvinna fiskinn hér á landi? Hvað um að styrkja garðyrkjubændur til að framleiða meira af lífrænum matvælum? Hvað um að nýta almennt hráefnið betur? Hvað um að efla ferðaþjónustuna og lengja ferðamannatímabilið með góðri markaðssetningu?Þarna gæti skapast fullt af vinnu í litlum arðbærum fyrirtækjum.

Við þurfum ekki heldur hvalveiðar til að skapa atvinnu. Ekki er sniðugt að spilla fyrir útflutning og ferðaþjónustu til að framleiða afurðir sem er ekki einu sinni markaður fyrir.

 

 


Davíð er dýr

Hann er meira að segja rándýr! Þessi maður hefur átt stóran þátt í því hvernig er komið fyrir íslenska þjóðina. Bæði með dæmalausan valdhroka og kolröngum aðgerðum og yfirlýsingum. Ef það er ekki hægt að reka þennan mann fyrir endurtekin afglöp í starfinu sínu, hvað er þá ástæða fyrir að segja fólki upp? Og svo er að velta fyrir sér hversu margar milljónir Davíð á inni ef hann hættir! Geta menn verið svona spilltir og síðblindir eftir allt sem hefur gengið á? Hann á ekki krónu inni og ætti frekar að borga tilbaka fyrir afar illa unnin störf.
mbl.is Jóhanna og Davíð ræddu saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sparnaður hjá Stætó?

Þeim hefur fjölgað til muna sem taka strætó, skilst mér. En það er eins og að þetta fari illa í stjórnamenn þess fyrirtækis.

Það eru 3 leiðir til þess að "rústa"almenningssamgöngurnar á höfuðborgarsvæðinu:

1. Hækka verðið á farmiðum þannig að það er ódýrara að ferðast á einkabíl, þótt maður sé bara einn í bílnum.

2. Fækka ferðunum þannig að ógerandi er að eiga ekki bíl : Fáar ferðir kvölds og helga og alls ekki ferð á sunnudögum fyrr en eftir hádegi.

3. Breyta stöðugt um áætlun og hafa það sem flóknast þannig að ekki nokkur maður getur munað hvenær strætó fer. Hafa svo bílstjórar sem kunna ekki íslensku og geta alls ekki svarað spurningunum örvæntingafullra farþega.

Ég hélt alltaf að almenningssamgöngur ættu að vera þjónustufyrirtæki sem á að draga úr umferðavandamálum og gera fólki kleift að sleppa einkabílnum. Þannig sparast stórar upphæðir í gatnagerð og -viðhald og bílastæðavandamálin minnka. En stefnan sem er núna á döfinni virka á mjög neikvæðan hátt, bæði hvað umhverfisvernd snertir og buddurnar þeirra sem eiga erfitt núna.


Til hamingju, Ísland

Ég ætla bara að óska þjóðinni til hamingju með nýja ríkisstjórn. Þetta er tvímælalaust skref í rétta átt. Og ég hef trú á því að skref fyrir skref munum við vinna okkur upp aftur. Þetta gerist ekki á einum degi og vegurinn mun vera brattur og erfiður. Ég öfunda ekki þau sem tóku við ráðherraembættum í dag, þetta verður strit og púl og margir munu vera ósáttir við sumar aðgerðir.

En samt, ég óska nýja ríkisstjórninni velfarnar fram að næsta kosningunum.


Hvað er ráðherrum leyfilegt að ákveða?

Nú er Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur í ríkisstjórn. Samt ákveður sjávarútvegsráðherra á síðustu stundu aukna hvalveiðar. Allir sem vinna í ferðaþjónustu vita að hvalveiðar eru mjög umdeildar svo ekki meira er sagt. Við eigum ekki efni á því að skaða ímynd okkar út á við meira en þegar hefur verið gert. Siðleysi og valdabrölt Sjálfstæðisflokksins lýsir sig hér í sína hreinustu mynd. Þetta minnir manninn óþægilega á þegar umdeilt virkjunarleyfi var gefið út nokkrum dögum fyrir kosningar.

Svona lagað ætti ekki að fá að komast í gegn. Einar G. er úr leik, núna!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband