5.8.2011 | 10:47
Rafmagnsvespur - af hverju ekki?
Í gær hjólaði ég í blíðskaparveðri úr Mósó til Reykjavíkur. Þetta er ágætis líkamsrækt, svona 30 km alls fram og tilbaka. Á leiðinni mætti ég nokkrum rafmagnsvespum sem sigldu hljóðlátt og á hægum hraða framhjá. Og ég skil ekki að sumum eru þessi umhverfisvænu faratæki þyrnir í augum. það er að ferðast á þeim á svipuðum hraða eins og hjá mörgum hjólreiðamönnum, eini munurinn er að notendur þeirra þurfa ekki að "púla". Mér finnst að þessar vespur eiga að vera jafngildar reiðhjólum og hlíða sömu umferðareglum. Ef eitthvað er að þá er bara stigakerfið okkar víðar ófullnægjandi og þarfnast endurbóta. Þarna liggur frekar hættan, en ekki í notkun rafmagnsvespunnar.
Svona í lokinn: Á bæjarferðinni mætti ég 2 bílum sem skröpuðu upp malbikkið á nagladekkjum! Hvar er eftirliti með svona skussum? Slíkt á ekki að eiga sér stað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.7.2011 | 10:26
Íþróttafréttir eða viðskiptafréttir?
Í dag er fyrsta og stærsta íþróttafrétt í DV um að Eiður Smári fer til grísks félags. Mikið er ég orðin leið á þessum "Eiður Smári fréttum"! Hvað hann fékk margar mínútur að spila, að hann sat á bekknum allan leikinn, að hann kom lítið við sögu í hinum og þessum leik, að hann skiptir yfir á hitt eða þetta félag. Félagsskipti og launamál fótboltastjarna mætti frekar birta undir viðskiptafréttum.
Það var hins vegar spilað úrslitaleik á HM kvenna í gær sem var sem betur fer sýnt í sjónvarpi. Í íþróttafréttum dagblaða þótti þessi viðburður ekki eins mikilvægur eins og nýjustu "Eiður Smári frétt", bara smá grein um þetta.
Sem áhugamaður um íþróttir vildi ég óska mér að í blöðunum væri einnig skrifað um annað en fótbolta og líka um viðburðir í heiminum sem enginn Íslendingur tekur þátt í. Til dæmis er stærsta hjólreiðakeppni Tour de France núna í gangi, ekkert minnst á þetta í okkar blöðum. Það þyrfti líklega annað dóp- hneyksli þar til þess að það rati í fréttirnar hjá okkur. Ég saknaði einnig frétt um Laugarvegshlaupið sem er orðið þekkt þolraun meðan langhlaupara frá mörgum þjóðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.7.2011 | 21:55
Þetta er ótrúlegt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2011 | 22:49
Heimsmet í plastpokum
Í hvert skipti sem ég fer að versla ofbýður mér ofnotkun plastpoka. Ennþá er horft á manninn eins og furðudýr þegar maður vill ekki plastpoka við kassann, þegar maður tekur upp bakpoka eða taupoka í staðinn og lætur það duga.
Plastið eyðist ekki eða allavega hægt í náttúru, það safnast til dæmis fyrir á ýmsum stöðum í sjónum og veldur þar mikið rask í vistkerfum. Sorp í plastpokum brotnar hægt niður, miklu hægar en ef það væri ekki pakkað í þessa "snyrtilega" húð. Ennþá er hér á landi venja að troða allt í svarta ruslapoka sem fellur til þegar garðar og grasflötin eru snyrt. Hefur einhverjum verkstjórum dottið í hug að koma með kerru og moka garðafgangar beint á kerrunna og keyra í moltugerð?
Plastið er gott til sins brúks en margt er hægt að gera án plastpoka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.6.2011 | 16:56
Þetta eru skemmdarverk
![]() |
Hurðinni skellt á okkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.6.2011 | 10:56
Íslendingar vakna til meðvitundar í umferðamálunum?
Umferðin á þjóðvegunum minnkar, þetta eru góðar fréttir. Þetta þýðir að æ fleiri hugsa sig um áður en lagt er af stað. Sameinast kannski í ökutækjunum í staðinn fyrir að hver maður fer í sinni dós. Tengja kannski ferðirnar saman í staðin fyrir að skutlast hingað og þangað til þess að sinna stökum erindum. Nota kannski almenningssamgöngurnar eða reiðhjólin í staðinn fyrir einkabílinn.
Vonandi skilja breytt viðhorf sér fljótlega í bættum strætisvagnasamgöngunum á Stórreykjavíkursvæðinu. Þar verða þeir sem þurfa að mæta snemma í vinnu um helgar eða komast seint heim á kvöldin ennþá að eiga einkabíl því enginn strætó fer.
Vonandi fá reiðhjólamenn einnig bætt vegakerfi til að nota reiðhjólið sem samgöngutæki. Þar á ég við beinar leiðir meðfram stofngötunum í staðinn fyrir óteljandi "krúsidúllur" sem lengja leiðina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2011 | 12:18
Kemur ekki á óvart
![]() |
Þriggja mánaða Icesave-frestur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.6.2011 | 16:42
Vesalings Geir Haarde!
Hugsa ykkur: Maður var fjármálaráðherra og svo forsætisráðherra í þeirra tíð þegar einkavæðingin stóð sem hæst. Þegar menn fengu að kaupa heila banka á vildarkjörum, þegar sumir einkavinir fengu að vaða hér um og skildu svo eftir sér allt í bál og brand.
Svo mætir þessi maður fyrir landsdóm með grátstaf í kverkin, með alla sína fjölskyldu í fínasta pússi fyrir fjölmiðlana á fyrsta bekk sér til stuðnings. Segist ekki hafa sök á neinu. Hefur ekki gert neitt. En þetta er einmitt málið: Hann hefur ekki gert neitt! Ekkert til þess að stöðva þessa vitleysu, ekkert til að reyna að bjarga það sem hefði verið hægt að bjarga. "Maybe I should have..." Hann hefur bara logið á okkur fram á síðasta dag fyrir hrunið, hefur margoft komið fram í fréttum til að segja okkur að ekkert væri að. "Guð blessi Ísland"!
Til að kóróna aumingjaskapinn þessa manns á nú að safna fyrir lögmannskostnað hans. Vonandi bankar enginn upp hjá mér með bauk í hendi, ég gæti varla stillt mig. Ætli maðurinn eigi ekki góðan sparibauk eftir öll góðu árin á flottu kaupi? Ætla konan hans hafi ekki líka þénað vel?
Margt fólk hefur um sárt að binda eftir hrunið og þyrfti frekar aðstoð.
En í einu er ég ósátt við landsdómsmálið: Ég hefði vilja sjá á bekk með Geir Haarde fleiri einstaklingar: Árni Mattiesen, Björgvin Sigurðsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttur og fyrst og fremst aðalhrunstjórann Davíð Oddsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.6.2011 | 20:09
Til hamingju, stelpur!
Já, til hamingju stelpur!
Bæði með góða þátttöku í kvennahlaupi og með glæsilegan árangur í handbolta.
Hér er um að ræða tvo þætti í íþróttum: Almenningsíþróttir og afreksíþróttir. Hvort tveggja er mikilvægt og getur ekki verið án hvors annars. Afreksíþróttir geta einungis blómstrað á breiðum grundvelli. Og almenningsíþróttir þurfa fyrirmyndir sem ýta fólkið af stað og sýna að það er áhugavert að stunda hreyfingar.
Glæsilegur árangur kvennalandsliðsins í handbolta í dag sýnir að kvennaíþróttir hér á landi eru ekki lakari en karlaíþróttir. Vonandi fá kvennaíþróttir héðan frá jafn mikið stuðning en karlar hafa fengið hingað til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2011 | 21:28
Þurfa íþróttakonur á svona lagað að halda?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)